GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Elva María Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er stigameistari Unglingamótaraðarinnar 2026 í flokki 15-16 ára stúlkna.

Elva María tók þátt í fimm af sjö mótum tímabilsins og safnaði 5.200 stigum. Sara María Guðmundsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð önnur með 5.050 stig og María Högnadóttir úr Golfklúbbnum Setbergi þriðja með 4.225 stig.

Baráttan um stigameistaratitilinn var jöfn, en aðeins 150 stig skildu Elvu Maríu og Söru Maríu að í lok tímabilsins.

Elva María hóf keppnistímabilið í Þorlákshöfn þar sem hún varð önnur í flokki 15-16 ára. Hún lék hringina þrjá á 77, 74 og 75 höggum og varð áttunda í flokki 15-18 ára á tíu höggum yfir pari.

Hún fylgdi því eftir með fjórum sigrum í röð innan síns aldursflokks. Elva María var efst 15-16 ára stúlkna á móti Unglingamótaraðarinnar á Hlíðavelli. Hún lék þar á 224 höggum, ellefu yfir pari, og varð sjöunda í heildarkeppni stúlkna 15-18 ára.

Næsti sigur kom í Icewear-bikar GKG. Elva lék hringina á 85, 80 og 74 höggum, bætti sig um ellefu högg á milli fyrsta og síðasta hrings og lauk leik í sjöunda sæti í heildina.

Elva varð Íslandsmeistari unglinga í höggleik á Hvaleyrarvelli. Þar lék Elva María á 76, 75 og 78 höggum og varð Íslandsmeistari í flokki 15-16 ára.

Elva María innsiglaði stigameistaratitilinn með sigri í sínum flokki í N1 Unglingamótinu á Korpúlfsstaðavelli. Hún lék hringina þrjá á 78, 78 og 77 höggum og varð sjöunda í mótinu í heild sinni.

Elva María sigraði í flokki 15-16 ára á fjórum af þeim fimm mótum sem hún tók þátt í og varð einu sinni í öðru sæti. Hún varð jafnframt Íslandsmeistari flokksins í höggleik. Frábæru sumri lokið hjá Elvu.

Hér má sjá stigalista 15-16 ára stúlkna í heild sinni

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ