GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Hjalti Kristján Hjaltason úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er stigameistari Unglingamótaraðarinnar 2026 í flokki 15-16 ára pilta.

Hjalti Kristján tók þátt í sex af sjö mótum tímabilsins og safnaði alls 4.840 stigum. Halldór Jóhannsson úr Golfklúbbnum Keili varð annar með 3.675 stig og Barri Björgvinsson úr Golfklúbbi Akureyrar þriðji með 3.550 stig.

Hjalti Kristján

Hjalti hóf tímabilið af krafti í Þorlákshöfn. Þar lék hann hringina þrjá á 68, 68 og 70 höggum og varð annar í flokki 15-18 ára á tíu höggum undir pari og endaði efstur kylfinga í flokki 15-16 ára.

Í næsta móti, sem fram fór á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, varð Hjalti í 11. sæti í heildina og fimmti í sínum aldursflokki. Hann lék hringina þrjá á samtals 215 höggum, tveimur höggum yfir pari.

Hjalti lék vel á Icewear-bikarnum hjá GKG og varð jafn í fjórða sæti í mótinu á fjórum höggum yfir pari. Hann og Björn Breki Halldórsson voru jafnir á besta skorinu í flokki 15-16 ára.

Á Íslandsmótinu í holukeppni á Selfossi varð Hjalti í fjórða sæti í sínum aldursflokki. Hann varð síðan annar í flokki 15-16 ára á Íslandsmótinu í höggleik á Hvaleyrarvelli. Hjalti lék hringina þrjá þar á 73, 78 og 73 höggum og lauk leik á átta höggum yfir pari.

Hjalti lauk tímabilinu með góðri frammistöðu í N1 Unglingamótinu á Korpúlfsstaðavelli. Hjalti lék þar á 73, 68 og 69 höggum og varð jafn í öðru sæti mótsins í heild sinni á sex höggum undir pari. Hann var efstur í flokki 15-16 ára og tryggði sér með því stigameistaratitilinn með öruggum hætti.

Í þeim fimm höggleiksmótum sem Hjalti tók þátt í varð hann þrisvar efstur í sínum aldursflokki og einu sinni í öðru sæti.

Hér má sjá stigalista 15-16 ára pilta í heild sinni

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ