GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

N1 Unglingamótinu, sjöunda og síðasta móti ársins á Unglingamótaröð GSÍ, lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag. Benjamín Snær Valgarðsson og Pamela Ósk Hjaltadóttir, bæði úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, léku best allra í pilta- og stúlknaflokki.

Alls tóku 84 kylfingar þátt í mótinu, 55 piltar og 29 stúlkur. Leikið var í flokkum 15-18 ára pilta og stúlkna, en einnig voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í flokki 15-16 ára. Leiknar voru 54 holur á lykkjunum Sjórinn og Áin, 36 holur á laugardeginum og 18 holur á lokahringnum í dag.

Benjamín Snær lék alla hringina undir pari

Benjamín Snær Valgarðsson, GKG, sigraði mótið í piltaflokki. Hann lék hringina þrjá á 69, 68 og 70 höggum og lauk leik á níu höggum undir pari. Benjamín fékk átján fugla á hringjunum þremur, sem reyndist fimm fuglum fleiri en næsti kylfingur.

Gunnar Þór Heimisson og Hjalti Kristján Hjaltason, einnig úr GKG, deildu öðru sætinu á sex höggum undir pari. Gunnar lék hringi sína á 72, 67 og 71 höggum en Hjalti á 73, 68 og 69 höggum.

Verðlaunahafar 15 18 ára pilta

Hjalti Kristján fékk einnig verðlaun fyrir besta skor kylfings í flokki 15-16 ára.

Hjalti Kristján lék frábært golf um helgina

Pamela Ósk sigraði á pari

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG, sigraði stúlknaflokkinn með sjö högga mun. Pamela lék besta hring flokksins á fyrsta hring þegar hún kom í hús á 68 höggum. Hún fylgdi því eftir með tveimur 74 högga hringjum og lauk leik á pari vallarins.

Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, varð önnur á sjö höggum yfir pari og Björk Hannesdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar varð þriðja á níu höggum yfir pari.

Verðlaunahafar 15 18 ára stúlkna

Elva María Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili lék best í flokki 15-16 ára stúlkna. Hún lék hringina á 78, 78 og 77 höggum og lauk leik á sautján höggum yfir pari.

Elva María lék best allra 15 16 ára stúlkna og tryggði sér stigameistaratitil flokksins

Öll úrslit mótsins má nálgast í GolfBox

Frábæru móti lokið og Unglingamótaröðin því búin á árinu 2026. Stigameistarar sumarsins voru einnig krýndir í dag, en úrslitin verða gerð upp hér á golf.is.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ