GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Edda María Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er Íslandsmeistari unglinga í höggleik í stúlknaflokki 12 ára og yngri. Edda María lék 27 holur mótsins á 127 höggum, 19 höggum yfir pari, og sigraði með sex högga mun.

Íslandsmót unglinga í höggleik fór fram dagana 20.-22. ágúst og var leikið á tveimur völlum. Kylfingar á aldrinum 15-18 ára léku á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili en kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Keppt var í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar.

Í flokkum 12 ára og yngri voru leiknar 27 holur, níu holur á hverjum keppnisdegi. Alls voru 98 kylfingar skráðir til leiks í aldursflokkunum fjórum á Þorláksvelli.

Edda María tók forystuna strax á fyrsta keppnisdegi þegar hún lék á 41 höggi.

Á öðrum hringnum lék Edda María á 43 höggum. Ásta Sigríður Egilsdóttir úr Golfklúbbnum Oddi átti þá besta hring mótsins í flokknum, 40 högg, og minnkaði forskot Eddu Maríu niður í tvö högg fyrir lokadaginn.

Edda María lék aftur á 43 höggum í dag. Hún fékk par á fyrstu, annarri og níundu holu hringsins og lauk mótinu á 127 höggum. Ásta Sigríður lék lokahringinn á 47 höggum og varð önnur á 133 höggum, 25 yfir pari.

Arna Dís Hallsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar hafnaði í þriðja sæti á 146 höggum, 38 höggum yfir pari.

Smelltu hér til að sjá öll úrslit mótsins


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ