GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Ólafur Bjarni Þórðarson úr Golfklúbbi Skagafjarðar er Íslandsmeistari unglinga í höggleik í drengjaflokki 12 ára og yngri. Ólafur Bjarni lék 27 holurnar á samtals 110 höggum, tveimur höggum yfir pari, og sigraði með einu höggi.

Íslandsmót unglinga í höggleik fór fram dagana 20.-22. ágúst og var leikið á tveimur völlum. Kylfingar á aldrinum 15-18 ára léku á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili en kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Keppt var í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar.

Í flokkum 12 ára og yngri voru leiknar 27 holur, níu holur á hverjum keppnisdegi. Alls voru 98 kylfingar skráðir til leiks á Þorláksvelli í aldursflokkunum fjórum.

Ólafur Bjarni byrjaði mótið vel og lék fyrsta hringinn á 35 höggum, einu höggi undir pari. Hann fékk fjóra fugla á hringnum og var með tveggja högga forystu.

Á öðrum keppnisdegi lék Ólafur Bjarni allar níu holurnar á pari og skilaði inn skorkorti upp á 36 högg. Hann hélt tveggja högga forskoti fyrir lokahringinn.

Ólafur Bjarni fékk fugl strax á fyrstu holu lokahringsins. Hann lék hringinn á 39 höggum og lauk mótinu á samtals 110 höggum, tveimur yfir pari. Eiríkur Bogi Karlsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar sótti að honum á lokahringnum og voru þeir jafnir fyrir lokaholuna, en Ólafur Bjarni fékk þar fugl og tryggði sér titilinn.

Eiríkur Bogi varð annar á 111 höggum, þremur yfir pari. Ísak Hrafn Jónasson úr Golfklúbbi Reykjavíkur hafnaði í þriðja sæti á 114 höggum, sex yfir pari.

Smelltu hér til að sjá öll úrslit mótsins


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ