GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Elva María Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er Íslandsmeistari unglinga í höggleik í flokki 15-16 ára stúlkna. Elva María lék hringina þrjá á 229 höggum, 13 höggum yfir pari Hvaleyrarvallar, og sigraði með 18 högga mun.

Íslandsmót unglinga í höggleik fór fram dagana 20.-22. ágúst og var leikið á tveimur völlum. Kylfingar á aldrinum 15-18 ára léku á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili en kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar.

Keppt var í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Á Hvaleyrarvelli voru leiknar 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi. Að loknum 36 holum var keppendum fækkað og 70% þeirra kylfinga sem voru með besta skorið í hverjum flokki héldu áfram keppni á lokahringnum.

Elva María tók forystuna strax á fyrsta keppnisdegi þegar hún lék heimavöll sinn á 76 höggum, fjórum yfir pari. Hún fékk tvo fugla á hringnum og var með fimm högga forskot eftir fyrstu 18 holurnar.

Hún bætti um betur á öðrum hring og lék á 75 höggum. Elva María fékk fjóra fugla á fyrstu sjö holunum. Með hringnum jók hún forskot sitt í 15 högg fyrir lokadaginn.

Elva María lék lokahringinn á 78 höggum. Hún lauk mótinu á 229 höggum og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.

Sara María Guðmundsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð önnur á 247 höggum, 31 höggi yfir pari. María Högnadóttir úr Golfklúbbnum Setbergi lék lokahringinn á 81 höggi og hafnaði í þriðja sæti á samtals 250 höggum, 34 yfir pari.

Elva María hefur átt gott sumar og varð meðal annars jöfn í tíunda sæti á European Young Masters á Spáni í júlí.

Smelltu hér til að sjá öll úrslit mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ