Óliver Elí Björnsson átti frábæran fyrsta keppnisdag á Jacques Léglise Trophy á The Island Golf Club á Írlandi. Hann vann báða leiki sína og skilaði tveimur stigum í hús fyrir lið meginlands Evrópu, sem leiðir 8-4 gegn liði Bretlands og Írlands fyrir síðari keppnisdaginn.
Óliver byrjaði mótið í fjórmenningi í morgun ásamt Norðmanninum Mathias Aase. Þeir mættu Englendingunum Cole Self og George Whitehead. Óliver og Aase tryggðu Evrópu fyrsta stig mótsins með sannfærandi sigri, 3/1.
Meginland Evrópu sótti þrjú af fjórum mögulegum stigum í fjórmenningnum. Liðið vann tvo leiki en hinum tveimur lauk með jafntefli. Staðan var því 3-1 þegar komið var að tvímenningum dagsins.
Óliver hélt áfram þar sem frá var horfið og mætti Íranum Isaac Oliver. Keilismaðurinn lék frábært golf og vann leikinn 4/3. Óliver hafði þar með skilað fullu húsi stiga á sínum fyrsta keppnisdegi fyrir lið meginlands Evrópu.
Evrópuliðið vann fimm af átta tvímenningum dagsins og jók forskot sitt í fjögur stig, en alls eru 25 stig í boði í mótinu. Evrópa þarf fimm stig til viðbótar til að tryggja sér sigur en 4,5 stig nægja liðinu til að halda bikarnum.
Jacques Léglise Trophy er árleg liðakeppni þar sem níu af fremstu kylfingum meginlands Evrópu, 18 ára og yngri, mæta úrvalsliði Bretlands og Írlands. Á lokadeginum verða leiknir fjórir fjórmenningar um morguninn og níu tvímenningar síðdegis.
Óliver var valinn í Evrópuliðið eftir sögulegan sigur sinn á Opna breska áhugamannamóti pilta um síðustu helgi.






