GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 5. deild karla fór fram á Kálfatjarnarvelli hjá Golfklúbbi Vatnsleysustrandar dagana 14.-16. ágúst.

Alls tóku átta klúbbar þátt:

  • Golfklúbbur Hornafjarðar
  • Golfklúbbur Álftaness
  • Golfklúbbur Sandgerðis
  • Golfklúbburinn Hamar Dalvík
  • Golfklúbbur Siglufjarðar
  • Golfklúbbur Fjarðabyggðar
  • Golfklúbburinn Lundur
  • Golfklúbburinn Gláma

Golfklúbbur Álftaness stóð uppi sem sigurvegari eftir 2-1 sigur gegn Golfklúbbi Siglufjarðar í úrslitaleiknum. Álftanes tryggði sér þar með sæti í 4. deild karla að ári.

Bæði úrslitaliðin höfnuðu í öðru sæti síns riðils en slógu út sigurvegara hins riðilsins í undanúrslitunum. Álftanes vann Golfklúbb Hornafjarðar 2-1 og Siglufjörður hafði betur gegn Golfklúbbnum Lundi með sama mun.

Golfklúbbur Hornafjarðar endaði í þriðja sæti eftir 2-1 sigur gegn Golfklúbbnum Lundi í leiknum um bronsið.

Six men in navy uniforms with medals pose side by side indoors, with a banner and trophy in the background.
Sveit Siglufjarðar
Five men wearing medals pose for a photo at an indoor awards event, standing in front of a banner and windowed wall.
Sveit Hornafjarðar

Smelltu hér fyrir úrslit allra leikja í 5. deild karla.

Lokastaðan í 5. deild karla 2026

  1. Golfklúbbur Álftaness
  2. Golfklúbbur Siglufjarðar
  3. Golfklúbbur Hornafjarðar
  4. Golfklúbburinn Lundur
  5. Golfklúbbur Sandgerðis
  6. Golfklúbburinn Hamar Dalvík
  7. Golfklúbbur Fjarðabyggðar
  8. Golfklúbburinn Gláma


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ