Íslandsmót golfklúbba 2026 í 2. deild karla fór fram í Vestmannaeyjum dagana 16.-18. ágúst.
Alls tóku átta klúbbar þátt:
- Golfklúbbur Setbergs
- Nesklúbburinn
- Golfklúbburinn Esja
- Golfklúbbur Kiðjabergs
- Golfklúbbur Vestmannaeyja
- Golfklúbburinn Leynir
- Golfklúbburinn Oddur
- Golfklúbbur Skagafjarðar
Heimamenn í Golfklúbbi Vestmannaeyja stóðu uppi sem sigurvegarar eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Setbergs í úrslitaleiknum. Vestmannaeyingar tryggðu sér þar með sæti í 1. deild karla að ári.
Liðin skiptu með sér stigunum í fjórmenningunum í úrslitaleiknum. Jón Valgarð Gústafsson og Einar Gunnarsson unnu fyrri leikinn fyrir Vestmannaeyjar, 1/0, gegn Atla Má Grétarssyni og Hallgrími Júlíussyni. Hjörtur Brynjarsson og Þorsteinn Erik Geirsson svöruðu fyrir Setberg með 6/5 sigri gegn Karli Haraldssyni og Kristófer Tjörva Einarssyni.
Vestmannaeyingar unnu tvo af þremur tvímenningunum. Daníel Ingi Sigurjónsson hafði betur gegn Benedikt Sveinssyni, 1/0, og Örlygur Helgi Grímsson vann Hrafn Guðlaugsson 4/3. Guðjón Henning Hilmarsson vann annað stig Setbergs með 5/4 sigri gegn Sigurbergi Sveinssyni.

Nesklúbburinn endaði í þriðja sæti eftir 3.5-1.5 sigur gegn Golfklúbbnum Leyni í leiknum um bronsið. Golfklúbbur Skagafjarðar hafnaði í áttunda sæti og leikur því í 3. deild að ári.
Smelltu hér fyrir úrslit allra leikja í 2. deild karla.
Lokastaðan í 2. deild karla 2026
- Golfklúbbur Vestmannaeyja
- Golfklúbbur Setbergs
- Nesklúbburinn
- Golfklúbburinn Leynir
- Golfklúbbur Kiðjabergs
- Golfklúbburinn Esja
- Golfklúbburinn Oddur
- Golfklúbbur Skagafjarðar





