GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2026 í flokki kylfinga 50 ára og eldri fara fram dagana 20.-22. ágúst á sex stöðum víðs vegar um landið. Keppt verður í fjórum deildum karla og tveimur deildum kvenna.

Mótin eru hluti af Íslandsmótum golfklúbba þar sem kylfingar keppa fyrir hönd síns golfklúbbs í liðakeppni.

Keppnisstaðirnir árið 2026 eru eftirfarandi:

1. deild kvenna – Golfklúbbur Suðurnesja (GS)
2. deild kvenna – Golfklúbburinn Vestarr (GVG)
1. deild karla – Golfklúbbur Öndverðarness (GÖ)
2. deild karla – Golfklúbbur Sandgerðis (GSG)
3. deild karla – Golfklúbbur Hveragerðis (GHG)
4. deild karla – Golfklúbburinn Hamar Dalvík (GHD)

Keilir er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild kvenna 50 ára og eldri eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitaleik mótsins í Vestmannaeyjum árið 2025.

Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild karla 50 ára og eldri. GR hafði betur gegn Golfklúbbnum Setbergi, 3-2, í úrslitaleik á Hólmsvelli í Leiru í fyrra.

Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum úr öllum sex deildunum hér fyrir neðan.

1. deild kvenna – 50+

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit

2. deild kvenna – 50+

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit

1. deild karla – 50+

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit

2. deild karla – 50+

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit

3. deild karla – 50+

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit

4. deild karla – 50+

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ