Íslandsmót unglinga í höggleik fara fram á tveimur golfvöllum dagana 20.-22. ágúst. Kylfingar á aldrinum 15-18 ára leika á Hvaleyrarvelli Golfklúbbsins Keilis, en kylfingar 14 ára og yngri leika á Þorláksvelli Golfklúbbs Þorlákshafnar.
Opið er fyrir skráningu í mótin. Skráningu lýkur 15. ágúst hjá 15-18 ára, en 16. ágúst hjá 14 ára og yngri.
Smelltu hér til að skrá þig í flokk 15-18 ára
Smelltu hér til að skrá þig í flokk 14 ára og yngri
Mótsgjald er 9.500 kr.
Keppt skal í eftirtöldum flokkum:
Stúlknaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0
Stúlknaflokkur 17-18 árs, hámarksforgjöf 15,0
Piltaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0
Piltaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 15,0
Stúlknaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – 3×9 holu höggleikur án forgjafar
Piltaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – 3×9 holu höggleikur án forgjafar
Stúlknaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – 3×18 holu höggleikur án forgjafar
Piltaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – 3×18 holu höggleikur án forgjafar
Hægt er að nálgast alla keppnisskilmála og frekari upplýsingar í hlekkjum hér að ofan




