GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Fjórir íslenskir kylfingar taka þátt í The R&A Boys’ og Girls’ Amateur Championship, sem hófust í Skotlandi í gær. Mótin eru meðal sterkustu og virtustu unglingamóta heims.

Gunnar Þór Heimisson og Arnar Daði Svavarsson úr GKG og Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili keppa í The Boys’ Amateur Championship. Mótið fer fram á Gailes Links vellinum.

Three young golfers pose together under an R&A Boys' Amateur Championship arch with trophy graphics on the sides, blue sky behind them.
Gunnar Arnar og Óliver

Bryndís Eva Ágústsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar er fulltrúi Íslands í The Girls’ Amateur Championship, sem leikið er á Craigielaw-vellinum. Öll fjögur eru í landsliðshópi GSÍ og kepptu fyrir Íslands hönd á Evrópumótum unglingalandsliða fyrr í sumar.

Woman in a red jacket swinging a golf club on a grassy course with a lake in the background.
Bryndís Eva

Alls hófu 144 kylfingar leik í hvoru móti. Fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn 36 holu höggleikur og komast 64 efstu kylfingarnir áfram í holukeppni. Þar tekur við útsláttarkeppni sem lýkur laugardaginn 15. ágúst. Úrslitaleikirnir eru leiknir yfir 36 holur.

Gunnar Þór lék best á fyrsta hringnum. Hann lék á 72 höggum, einu höggi yfir pari, og var jafn í 53. sæti.

Óliver Elí lék fyrsta hringinn á 76 höggum, fimm höggum yfir pari, og var jafn í 118. sæti. Arnar Daði kom í hús á 77 höggum, sex höggum yfir pari, og var jafn í 128. sæti.

Bæði mótin eiga sér langa og merka sögu. Margir af fremstu kylfingum heims hafa keppt í mótunum og meðal fyrrverandi sigurvegara eru José María Olazábal, Sergio García, Matt Fitzpatrick, Anna Nordqvist, Suzann Pettersen og Georgia Hall.

Sigurvegararnir tryggja sér þátttökurétt í nokkrum stórum mótum. Sigurvegari piltamótsins fær meðal annars þátttökurétt í The Amateur Championship og lokaúrtöku fyrir The Open. Sigurvegari stúlknamótsins fær meðal annars þátttökurétt í The Women’s Amateur Championship, U.S. Girls’ Junior og lokaúrtöku fyrir AIG Women’s Open, auk boðs í Augusta National Women’s Amateur.

Hægt er að fylgjast með The Boys’ Amateur og The Girls’ Amateur á heimasíðu The R&A.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ