Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, hefur leik á bandaríska áhugamannamótinu, U.S. Amateur Championship, í dag. Mótið er eitt stærsta og sterkasta áhugamannamót heims og fer fram á Merion Golf Club og Philadelphia Country Club í Pennsylvaníu.
Alls eru 312 kylfingar skráðir til leiks. Fyrstu tvo keppnisdagana leikur hver kylfingur einn hring á hvorum velli. Að loknum 36 holum komast 64 efstu áfram í holukeppni sem hefst miðvikudaginn 12. ágúst. Úrslitaleikurinn fer fram sunnudaginn 16. ágúst og er leikinn yfir 36 holur.
Þetta er annað árið í röð sem Gunnlaugur Árni tekur þátt í mótinu. Hann komst áfram í holukeppnina á síðasta ári og datt úr leik í 64 manna úrslitum.
Gunnlaugur Árni er í hópi efstu áhugakylfinga heims og er tólfti á heimslista áhugamanna í dag. Alls eru 47 af 50 efstu kylfingum heimslistans skráðir til leiks og því ljóst að samkeppnin verður gríðarlega sterk.

Frábært ár að baki
Gunnlaugur Árni hefur átt afar gott ár. Hann varð fyrr í sumar fyrsti íslenski karlkylfingurinn til þess að keppa á Opna bandaríska meistaramótinu, U.S. Open, eftir að hafa tryggt sér sæti í gegnum lokaundankeppni.
Hann lauk einnig sínu öðru tímabili með LSU-háskólanum í vor. Gunnlaugur Árni lék 31 keppnishring á tímabilinu og var með 70,39 högg að meðaltali. Hann sigraði á Fallen Oak Collegiate Invitational, varð annar á Jackson T. Stephens Cup og endaði jafn í 32. sæti á NCAA-meistaramótinu.
Gunnlaugur Árni hefur nú leikið 67 keppnishringi fyrir LSU og er með 70,31 högg að meðaltali. Það er lægsta meðalskor í sögu karlaliðs skólans.
Merion Golf Club er einn þekktasti golfvöllur Bandaríkjanna og hefur margsinnis hýst stærstu mót landsins. U.S. Amateur fer nú fram í 126. sinn og stendur yfir dagana 10.-16. ágúst.
Hægt verður að fylgjast með stöðu og úrslitum Gunnlaugs Árna á heimasíðu mótsins.




