GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Two golfers on a podium posing with trophies and bouquets outdoors, in front of a large yellow clock sign under a blue sky.
Aron og Elsa
Auglýsing

Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss og Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni voru verðlaunuð fyrir árangur sinn á Íslandsmótinu í golfi 2026 á Korpúlfsstaðavelli.

Aron Emil vann Björgvinsskálina fyrir lægsta skor áhugakylfings í karlaflokki, en Elsa Maren vann Guðfinnubikarinn fyrir lægsta skor áhugakylfings í kvennaflokki.

Bæði höfnuðu þau í öðru sæti síns flokks á Íslandsmótinu.

Aron Emil vann Björgvinsskálina í annað sinn

Aron Emil lék hringina fjóra á 70, 72, 67 og 70 höggum. Hann lauk mótinu á 279 höggum, fimm undir pari, og varð annar í karlaflokki á eftir Dagbjarti Sigurbrandssyni.

Aron Emil lék stöðugt golf alla fjóra keppnisdagana og lék tvo síðustu hringina á samtals fimm höggum undir pari. Frammistaðan tryggði honum Björgvinsskálina og skilaði honum jafnframt stigameistaratitli GSÍ mótaraðarinnar 2026.

Þetta er í annað sinn sem Aron Emil hlýtur Björgvinsskálina, en hann vann hana einnig árið 2024.

Skálin er veitt til heiðurs Björgvini Þorsteinssyni, sexföldum Íslandsmeistara. Verðlaunagripurinn er skál sem Björgvin hlaut fyrir fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn árið 1971 og ánafnaði síðar Golfsambandi Íslands.

Björgvin tók þátt í 56 Íslandsmótum, þar af 55 í röð. Björgvinsskálin var fyrst veitt árið 2021 og er Aron Emil fyrsti kylfingurinn sem hlýtur hana tvisvar.

Handhafar Björgvinsskálarinnar:

ÁrKylfingurGolfklúbbur
2021Aron Snær JúlíussonGKG
2022Kristján Þór EinarssonGM
2023Logi SigurðssonGS
2024Aron Emil GunnarssonGOS
2025Dagbjartur SigurbrandssonGR
2026Aron Emil GunnarssonGOS

Elsa Maren vann Guðfinnubikarinn

Elsa Maren hóf Íslandsmótið af miklum krafti og leiddi eftir fyrsta keppnisdaginn þegar hún lék á 67 höggum, fjórum undir pari. Hún lék næstu hringi á 74, 74 og 73 höggum og lauk mótinu á 288 höggum, fjórum yfir pari.

Elsa Maren varð önnur í kvennaflokki, fimm höggum á eftir Íslandsmeistaranum Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Hún var jafnframt á lægsta skori áhugakylfings og vann því Guðfinnubikarinn í fyrsta sinn.

Guðfinnubikarinn var fyrst veittur árið 2024. Hann er veittur til heiðurs Guðfinnu Sigurþórsdóttur, fyrstu konunni sem varð Íslandsmeistari í golfi. Guðfinna vann titilinn fyrst árið 1967 og varð alls þrívegis Íslandsmeistari.

Verðlaunagripurinn er úr safni Guðfinnu. Hún var í hópi stofnenda Golfklúbbs Suðurnesja árið 1964 og barðist af krafti fyrir framgangi kvenna í íslensku golfi.

Handhafar Guðfinnubikarsins:

ÁrKylfingurGolfklúbbur
2024Hulda Clara GestsdóttirGKG
2025Perla Sól SigurbrandsdóttirGKG
2026Elsa Maren SteinarsdóttirGL

Aron Emil og Elsa Maren eru vel að verðlaununum komin eftir frábæra frammistöðu á Íslandsmótinu í golfi 2026, til hamingju með árangurinn.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ