Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru Íslandsmeistarar í golfi 2026. Íslandsmótinu lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag, en bæði náðu þau að verja titil sinn frá síðasta ári. Þetta er í fyrsta skiptið frá árinu 1992 sem báðir titlarnir eru varðir.
Dagbjartur Íslandsmeistari eftir örugga frammistöðu
Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur hóf lokahringinn með sex högga forystu og lét hana aldrei af hendi. Hann lék lokahringinn á 71 höggi, pari vallarins, og lauk mótinu á 274 höggum, tíu undir pari.
Dagbjartur fékk fjóra fugla og fjóra skolla á lokahringnum. Hann var einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar og bætti við fugli á elleftu holu áður en hann tapaði tveimur höggum á 16. og 17. holu. Par á lokaholunni tryggði honum Íslandsmeistaratitilinn með fimm högga mun.
Dagbjartur lék hringina fjóra á 66, 68, 69 og 71 höggi.
Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss varð annar á fimm höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 70 höggum, einu undir pari, eftir að hafa fengið þrjá fugla á fyrstu sjö holunum.
Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar átti næstbesta hring lokadagsins. Hann lék á 67 höggum, fjórum undir pari, og færðist upp í þriðja sætið á þremur höggum undir pari samtals.
Tómas Eiríksson Hjaltested varð fjórði á tveimur höggum undir pari. Kristófer Orri Þórðarson og Hjalti Kristján Hjaltason deildu fimmta sætinu á einu höggi yfir pari.

Guðrún Brá Íslandsmeistari í fimmta skiptið
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili hóf lokahringinn með þriggja högga forystu og lék á 71 höggi, pari vallarins. Hún lauk mótinu á 283 höggum, einu höggi undir pari, og varði þar með Íslandsmeistaratitil sinn.
Þetta er hennar fimmti Íslandsmeistaratitill, en Guðrún hafði áður unnið árin 2018, 2019, 2020 og 2025. Með sigrinum hefur hún nú oftar unnið mótið en pabbi hennar, Björgvin Sigurbergsson, sem vann mótið fjórum sinnum. Guðrún er nú einnig næst sigursælasta konan í sögu mótsins, en Karen Sævarsdóttir er sú eina sem unnið hefur oftar. Karen varð átta sinnum Íslandsmeistari í golfi.
Guðrún Brá fékk skolla á fyrstu holu en svaraði með erni á sjöundu holu. Hún fékk annan skolla á níundu holu áður en fugl á þeirri tíundu kom henni aftur undir par á hringnum. Skolli á elleftu holu varð síðasta tapaða högg hennar í mótinu og hún lék síðustu sjö holurnar á pari.
Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur á fjórum höggum yfir pari, fimm höggum á eftir Guðrúnu Brá. Elsa lék lokahringinn á 73 höggum og fékk tvo fugla á fyrstu sex holunum, en tapaði fjórum höggum á seinni níu.
Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðja á sex höggum yfir pari. Hún var komin þrjá undir par eftir átta holur á lokahringnum en erfiður kafli á seinni níu varð til þess að hún lauk leik á 74 höggum.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir varð fjórða á 14 höggum yfir pari. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir deildu fimmta sætinu á 15 höggum yfir pari.

Frábæru móti á Korpúlfsstaðavelli lokið. Mikill fjöldi fólks gerði sér ferð á völlinn á sá okkar bestu kylfinga leika á þessum flotta keppnisvelli.
Hér má sjá heildarúrslit og tölfræði mótsins




