Golfmót GSFÍ fór fram á Korpúlfsstaðavelli í dag, en mótið er orðið fastur liður í Íslandsmótsvikunni. Að venju var mikil gleði á vellinum og tókst mótshaldið afar vel. Keppendur voru ánægðir með daginn á frábærum en krefjandi keppnisvelli sem var í fullum Íslandsmótsskrúða.
Ellefu keppendur mættu til leiks og léku punktakeppni með forgjöf, en einnig voru veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar. Sigurður Guðmundsson, Golfklúbbi Sandgerðis, og Helgi Sveinsson, Golfklúbbnum Oddi, voru jafnir á 81 höggi. Sigurður hlaut verðlaunin fyrir efsta sætið þar sem hann lék seinni níu holurnar á færri höggum.

Kristján Páll R. Hjaltason úr Golfklúbbi Borgarness vann punktakeppnina á 38 punktum. Helgi varð annar á 37 punktum og Björgvin Ingi Ólafsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð þriðji með 34 punkta.

Samhliða mótinu fór fram golfæfing fyrir kylfinga með fötlun. Æfingin og mótið heppnuðust bæði mjög vel og mynduðu skemmtilega dagskrá á Korpúlfsstaðavelli í aðdraganda Íslandsmótsins í golfi.
Markmið mótsins er að efla mótahald innanlands fyrir kylfinga með fötlun og auka á sýnileika starfsemi GSFÍ.
Smelltu hér fyrir úrslit mótsins
Hér má finna myndasafn mótsins
Samtökin hafa starfrækt reglubundnar æfingar í samstarfi við nokkra golfklúbba undanfarin ár og þekkja til kylfinga sem þar hafa sótt starfið.
Mótið er orðinn árlegur viðburður í Íslandsmótsvikunni, sem hefur reynst frábær viðbót við dagskrána.











