GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót unglinga 2026 í holukeppni fór fram á Selfossi dagana 23.-25. júlí.

Í flokki 15-16 ára var ekki leikinn höggleikur áður en útsláttarkeppnin hófst. Keppendum var þess í stað raðað í sæti eftir stöðu þeirra á stigalista mótaraðarinnar í sumar. Keppnin hófst í 16 manna úrslitum, en níu stúlkur tóku þátt og sátu því flestar hjá í fyrstu umferð.

Til úrslita léku Sara María Guðmundsdóttir og María Högnadóttir. Sara María vann úrslitaleikinn 2/0 og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026.

Sara María var efst í röðuninni. Hún vann Ástu Rebekku Þorsteinsdóttur 5/4 í átta manna úrslitum og mætti síðan Kötlu Maríu Sigurbjörnsdóttur í undanúrslitum. Sara María hafði betur, 3/2, og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.

María var önnur í röðuninni. Hún vann Ester Ýri Ásgeirsdóttur 2/1 í átta manna úrslitum og lagði síðan Hrefnu Líf Steinsdóttur 5/4 í undanúrslitum.

Katla María tryggði sér þriðja sætið með 3/2 sigri gegn Hrefnu Líf í leiknum um bronsið.

Verðlaunasæti:

  1. Sara María Guðmundsdóttir
  2. María Högnadóttir
  3. Katla María Sigurbjörnsdóttir

Hér má sjá úrslit allra leikja

Keppnisbracket fyrir stúlkur 15–16 ára með undanúrslit og úrsli, nöfn keppenda í hverri viðureign og lokainnslit.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ