GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

European Young Masters, eitt sterkasta unglingamót Evrópu, hefst á morgun á Parador de El Saler vellinum við Valencia á Spáni. Fjórir íslenskir kylfingar taka þátt í mótinu, sem fram fer dagana 23.-25. júlí.

Í íslenska hópnum eru þau Halldór Jóhannsson (GK), Elva María Jónsdóttir (GK), Elísabet Þóra Ólafsdóttir (NK) og Máni Freyr Vigfússon (GK).

European Young Masters er ætlað fremstu kylfingum Evrópu 16 ára og yngri. Alls taka 120 kylfingar frá 33 þjóðum þátt í mótinu í ár. Leiknar verða 54 holur í höggleik og keppt bæði í einstaklingskeppni pilta og stúlkna og í blandaðri liðakeppni þjóða. Tvær stúlkur og tveir piltar keppa fyrir hverja þjóð og gilda þrjú bestu skor liðsins á hverjum keppnisdegi til úrslita í liðakeppninni.

Mótið var fyrst haldið árið 1995 og hafa margir af fremstu kylfingum heims tekið þátt í því á yngri árum. Þar á meðal eru Rory McIlroy, Jon Rahm, Viktor Hovland, Sergio Garcia, Matthew Fitzpatrick, Carlota Ciganda, Georgia Hall og Suzann Pettersen.

Íslenskir kylfingar hafa áður náð eftirtektarverðum árangri í mótinu. Perla Sól Sigurbrandsdóttir sigraði í stúlknaflokki árið 2022 og Markús Máni Marelsson varð í öðru sæti í piltaflokki ári síðar.

Parador de El Saler er par 72 og hefur meðal annars hýst Opna spænska meistaramótið, Seve Trophy og Evrópumót áhugamanna.

„Völlurinn hérna er virkilega flottur og í toppstandi. Hann er í styttri kantinum en jafnframt mjög þröngur, sem gerir teighöggin sérstaklega mikilvæg. Okkar kylfingar hafa undirbúið sig mjög vel og eru komin með gott leikplan fyrir mótið. Krakkarnir eru alveg til fyrirmyndar og við erum öll mjög spennt fyrir mótinu,“ segir Andri Þór Björnsson, aðstoðarafreksstjóri GSÍ, sem fylgir íslenska liðinu á mótið.

Fyrsti hringurinn verður leikinn á fimmtudag.

Hægt verður að fylgjast með skori íslensku kylfinganna hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ