Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er á meðal keppenda á EM einstaklinga í golfi sem hefst í Svíþjóð í dag, miðvikudaginn 22. júlí.
Mótið fer fram dagana 22.-25. júlí á Allerum Golf vellinum, sem er í nágrenni við Helsingborg. Alls taka 144 áhugakylfingar þátt í mótinu, sem er eitt sterkasta einstaklingsmót áhugakylfinga í Evrópu.
Leikinn verður 72 holu höggleikur á fjórum keppnisdögum. Eftir fyrstu tvo hringina komast 96 efstu kylfingarnir áfram á þriðja keppnisdag. Að loknum 54 holum verður aftur skorið niður og 60 efstu leika lokahringinn á laugardag.
Evrópumót kvenna var fyrst haldið árið 1986 og hefur um árabil skipað stóran sess í evrópsku áhugamannagolfi. Fjölmargir kylfingar sem síðar hafa náð langt í atvinnumennsku hafa tekið þátt í mótinu, þar á meðal Linn Grant, Maja Stark, Carlota Ciganda og Céline Boutier. Sigurvegarinn fær jafnframt þátttökurétt á AIG Women’s Open sem hefst þann 29. júlí.

Eva í góðu formi í sumar
Eva hefur leikið vel á GSÍ mótaröðinni í sumar og er í þriðja sæti stigalistans með 2.302 stig.
Hún hefur endað á meðal þriggja efstu í þremur af fjórum mótum sínum til þessa. Eva varð í þriðja sæti á Reykjanesmótinu, jöfn í þriðja sæti í Korpubikarnum og vann sitt fyrsta mót á mótaröðinni í Þorlákshöfn í byrjun júní. Hún tók einnig þátt á Íslandsmótinu í holukeppni þar sem hún endaði jöfn í níunda sæti.
Eva mætir því til leiks í Svíþjóð eftir stöðugt og gott gengi hér heima í sumar. Hún hefur leik kl. 11:00 að staðartíma á fyrstu holu vallarins.




