GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Evrópumót kvenna, karla, stúlkna og pilta hefjast þriðjudaginn 7. júlí. Ísland er með lið í öllum fjórum mótunum og leika öll íslensku landsliðin í efstu deild.

Evrópumót karla fer fram í Eistlandi, þar sem sextán sterkustu sveitir Evrópu mæta til leiks á Estonian Golf & Country Club í Harju County, skammt frá Tallinn.

Fyrirkomulag mótsins er tveggja daga höggleikur og þriggja daga holukeppni. Leikinn er 36 holu höggleikur fyrstu tvo keppnisdagana og fimm af sex skorunum liðsins telja hvorn dag. Að loknum höggleiknum tekur við holukeppni þar sem leikið er um sæti í mótinu.

Evrópumót karla 7.-11. júlí í Eistlandi

Smelltu hér fyrir stöðuna hjá karlalandsliðinu:

Sveit Íslands skipa:

Aron Emil Gunnarsson, GOS
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR
Skúli Gunnar Ágústsson, GKG
Sigurður Bjarki Blumenstein, GR
Veigar Heiðarsson, GA

Þjálfari: Þorsteinn Hallgrímsson
Sjúkraþjálfari: Baldur Gunnbjörnsson

Mótið var fyrst haldið árið 1959 og hefur í gegnum tíðina reynst góður vettvangur fyrir marga af bestu kylfingum Evrópu áður en þeir stigu næstu skrefin á sínum ferli.

Estonian Golf & Country Club er staðsettur um 20 mínútum frá Tallinn, höfuðborg Eistlands. Völlurinn liggur í fallegu umhverfi við Eystrasaltið og Jägala-ána.

Við munum fylgjast með gengi okkar kylfinga á öllum helstu miðlum GSÍ.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ