GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Evrópumót kvenna, karla, stúlkna og pilta hefjast þriðjudaginn 7. júlí. Ísland er með lið í öllum fjórum mótunum og leika öll íslensku landsliðin í efstu deild.

Evrópumót kvenna fer fram á Írlandi, þar sem íslenska kvennalandsliðið mætir til leiks á PGA National Slieve Russell í Ballyconnell.

Fyrirkomulag mótsins er tveggja daga höggleikur og þriggja daga holukeppni. Leikinn er 36 holu höggleikur fyrstu tvo keppnisdagana og fimm af sex skorunum liðsins telja hvorn dag. Að loknum höggleiknum tekur við holukeppni þar sem leikið er um sæti í mótinu.

Evrópumót kvenna 7.-11. júlí á Írlandi

Smelltu hér fyrir stöðuna hjá kvennalandsliðinu:

Sveit Íslands skipa:

Elsa Maren Steinarsdóttir, GL
Eva Kristinsdóttir, GM
Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS
Guðrún Jóna Nolan Þorsteinsdóttir, Bretland
Karen Lind Stefánsdóttir, GKG
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR

Þjálfari: Logi Sigurðsson
Sjúkraþjálfari: Árný Lilja Árnadóttir

Alls eru 22 þjóðir skráðar til leiks að þessu sinni og því ljóst að stórt verkefni bíður.

PGA National Slieve Russell er par 72 völlur í County Cavan á Írlandi. Völlurinn er hannaður af írska golfvallahönnuðinum Patrick Merrigan og er hluti af Slieve Russell Estate. Völlurinn fellur fallega inn í landslagið þar sem vötn og hæðir setja svip sinn á umhverfið.

Við munum fylgjast með gengi okkar kylfinga á öllum helstu miðlum GSÍ.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ