GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur í dag leik í Arnold Palmer Cup, einu sterkasta áhugamannamóti heims. Mótið fer fram á Tralee Golf Links á Írlandi dagana 3.-5. júlí.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Hér má horfa á fyrsta hringinn í beinni

Þetta er annað árið í röð sem Gunnlaugur er valinn í alþjóðlega úrvalsliðið í mótinu, en þar mætast lið Bandaríkjanna og lið alþjóðlegra kylfinga úr bandaríska háskólagolfinu. Liðin samanstanda af 12 körlum og 12 konum og er leikfyrirkomulagið með sama sniði og í Ryder- og Solheim bikurunum.

Arnold Palmer Cup er haldið í 30. skipti í ár. Mótið var fyrst haldið árið 1997 og hefur í gegnum tíðina verið vettvangur margra af bestu kylfingum heims áður en þeir stigu inn í atvinnumennskuna. Þar má nefna kylfinga á borð við Ludvig Åberg, Bryson DeChambeau, Jon Rahm, Justin Thomas, Collin Morikawa og Rickie Fowler.

Gunnlaugur Árni á Arnold Palmer Cup 2025

Gunnlaugur tók fyrst þátt í mótinu í fyrra og hjálpaði þá alþjóðlega liðinu að vinna öruggan sigur á Bandaríkjunum, 35-25, á Congaree vellinum í Suður-Karólínu. Hann lék frábært golf í mótinu og skilaði liðinu tveimur vinningum. Hann er fyrsti íslenski kylfingurinn til að fá boð í Arnold Palmer Cup.

Fyrirkomulag

Á fyrsta keppnisdegi er leikinn betri bolti. Einn karl og ein kona mynda saman tveggja manna teymi og gildir betra skorið á hverri holu. Gunnlaugur hefur leik kl. 10:45 að staðartíma með hinni kólumbísku Maria Jose Marin, sem er fimmta á heimslista áhugakvenna. Þau léku einnig saman í mótinu á síðasta ári og skiluðu þar 3/1 sigri gegn sterku liði Bandaríkjanna.

Á öðrum keppnisdegi eru leiknar 36 holur. Báðir hringirnir eru leiknir í fjórmenning, þar sem kylfingar leika einum bolta og skiptast á að slá. Fyrir hádegi mun Gunnlaugur leika með öðrum karlkylfing og eftir hádegi verður hann paraður með kvenkylfing.

Á síðasta keppnisdegi er leikið í tvímenningi, þar sem hver kylfingur leikur einstaklingsviðureign í holukeppni. Alls eru leiknar 60 viðureignir í mótinu og hvert stig getur skipt miklu máli í heildarkeppninni.

Tralee Golf Links

Mótið í ár fer fram á Tralee Golf Links í Kerry á vesturströnd Írlands. Völlurinn er einn þekktasti strandvöllur Írlands og var hannaður af Arnold Palmer sjálfum. Tralee var fyrsti völlurinn sem Palmer hannaði í Evrópu og er völlurinn þekktur fyrir dramatískt landslag, mikla sandhóla, útsýni yfir Atlantshafið og krefjandi holur.

Það er því vel við hæfi að 30. útgáfa Arnold Palmer Cup fari fram á velli sem tengist Palmer sjálfum með jafn beinum hætti.

Frábært tímabil hjá Gunnlaugi

Gunnlaugur kemur inn í mótið eftir flott tímabil með LSU háskólanum í Bandaríkjunum. Hann sigraði Fallen Oak Collegiate Invitational í október þar sem hann lék hringina þrjá á 66, 70 og 67 höggum, eða samtals á 13 höggum undir pari. Sigurinn var hans annar á háskólaferlinum.

Hann endaði tímabilið með 70,39 högg að meðaltali í 31 hring hjá LSU, lék 20 hringi á pari eða betur og skilaði 15 hringjum undir 70 höggum. Gunnlaugur var einnig í 32. sæti á NCAA Championship mótinu þar sem hann lék á pari vallar eftir hringi upp á 77, 74, 69 og 68 högg.

Í júní skrifaði Gunnlaugur svo íslenska golfsögu þegar hann varð fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á U.S. Open. Hann tryggði sér sæti í mótinu í gegnum lokaúrtökumót í Ohio þar sem hann lék á níu höggum undir pari og komst inn eftir bráðabana.

Gunnlaugur er því mættur aftur í Arnold Palmer Cup með mikla reynslu í farteskinu. Hann hefur þegar sýnt að hann á heima á þessu sviði og það verður spennandi að fylgjast með honum og alþjóðlega liðinu reyna að verja titilinn á Írlandi um helgina.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ