GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, og Haraldur Franklín Magnús, GR, verða báðir á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir Opna mótið í dag, þar sem leikið verður um sæti á hinu sögufræga risamóti.

Lokaúrtökumótið fer fram á fjórum völlum í Bretlandi: Burnham & Berrow, Dundonald Links, Royal Cinque Ports og West Lancashire. Á hverjum velli leika 72 kylfingar um fimm laus sæti í mótinu, sem fram fer á Royal Birkdale vellinum í júlí.

Íslensku kylfingarnir leika ekki á sama vellinum. Haraldur Franklín verður á Dundonald Links í Skotlandi en Gunnlaugur Árni leikur á West Lancashire á Englandi. Báðir vellirnir eru krefjandi og útlit er fyrir erfiðar aðstæður, þar sem væta og vindur gætu sett mark sitt á daginn.

Haraldur hefur leik klukkan 07:30 að staðartíma og fer út á seinni hringinn klukkan 13:15. Hann leikur með Skotanum Calum Fyfe og Bandaríkjamanninum John Vogelpohl.

Gunnlaugur Árni fer af stað klukkan 08:35 að staðartíma og leikur seinni hringinn klukkan 14:20. Með honum í holli verða tveir afar sterkir kylfingar, Masters-meistarinn Danny Willett og PGA-kylfingurinn Matt Wallace.

Hér má fylgjast með stöðu mótanna

Gunnlaugur kemur inn í mótið eftir sögulega þátttöku á U.S. Open, þar sem hann varð fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika í mótinu. Hann vann sér sæti á U.S. Open í lokaúrtökumóti í Ohio fyrr í mánuðinum og veit því vel við hverju er að búast í móti dagsins.

Haraldur þekkir einnig vel til risamótanna. Hann varð árið 2018 fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á risamóti þegar hann tók þátt í Opna mótinu á Carnoustie. Hann komst þá inn í mótið í gegnum lokaúrtökumót og freistar þess nú að endurtaka leikinn, eftir að hafa tryggt sér sæti í lokaúrtökumótinu í gegnum undankeppni.

Haraldur sagði fyrir mótið að Dundonald væri „þrusuerfiður“ völlur og að þolinmæði yrði lykilatriði. Í aðstæðum sem þessum snýst verkefnið ekki endilega um að sækja á allar holur, heldur að halda boltanum í leik, taka skynsamlegar ákvarðanir og safna nógu mörgum pörum.

Á West Lancashire verður öflugur keppendalisti, en þar eru meðal annars Sergio Garcia, Danny Willett, Matt Wallace, Matthew Jordan og Shubhankar Sharma á meðal keppenda. Á Dundonald eru einnig þekkt nöfn í hópnum, þar á meðal Robert Rock, Angel Hidalgo og margir sterkir ungir kylfingar.

Framundan er langur og krefjandi dagur hjá þeim Gunnlaugi og Haraldi. Til að komast alla leið þurfa þeir að vera í hópi fimm efstu kylfinga á sínum velli eftir 36 holur, og mun hvert högg því skipta miklu máli.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ