GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokkum 16- og 18 ára og yngri fór fram á Garðavelli á Akranesi dagana 24.-26. júní. Í flokki 16 ára og yngri var einungis keppt í piltaflokki, en Golfklúbbur Akureyrar stóð uppi sem sigurvegari eftir frábæra spilamennsku.

Piltar 16 ára og yngri:

Alls mættu þrettán lið til leiks.

Fyrsti hringur mótsins var 18 holu höggleikur þar sem fjórir kylfingar léku fyrir hverja sveit, en einungis bestu þrjú skorin töldu. Úrslit hans voru notuð til að raða sveitunum niður í riðla. Sveit GA sigraði höggleikinn og lenti í riðli með GR, GKG-B og GK-B.

Akureyringarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu alla leiki riðilsins 3-0. Í úrslitunum mættu þeir sveit GKG-A, sem einnig hafði sigrað alla leiki sína 3-0.

Áfram hélt sigurganga GA í úrslitaleiknum. Þeir unnu leikinn 3-0 og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Frábær spilamennska hjá þessari ungu og efnilegu sveit.

Í sveit Golfklúbbs Akureyrar voru:

  • Ágúst Már Þorvaldsson
  • Arnar Freyr Viðarsson
  • Egill Örn Jónsson
  • Barri Björgvinsson
  • Baldur Sam Harley
Group of seven men posing in a row; five wearing pink shirts with medals, two in casual outfits, one holding a trophy in front of a blue sponsor backdrop.
Íslandsmeistarar

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar sótti annað sætið og Golfklúbburinn Keilir það þriðja eftir sigur í leiknum um bronsið.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ