Íslandsmótið í holukeppni kvenna 2026 fór fram dagana 19.-21. júní á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbnum Keili, er Íslandsmeistari í holukeppni kvenna 2026 en hún sigraði Heiðu Rakel Rafnsdóttur, Golfklúbbi Mosfellsbæjar, í úrslitaleiknum. Þetta er fyrsta mót Guðrúnar á GSÍ mótaröðinni í sumar, en hún leikur á LET atvinnumótaröðinni, sem er sú sterkasta í Evrópu.
Með sigrinum er Guðrún ríkjandi Íslandsmeistari kvenna í bæði höggleik og holukeppni.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, sigraði Fjólu Margréti Viðarsdóttur, GS, í leiknum um þriðja sætið.

Leiknar voru 36 holur í höggleik á föstudaginn þar sem efstu sextán kylfingarnir komust áfram í útsláttarhluta mótsins. Guðrún var efst eftir höggleikinn, en hún lék báða hringina á 71 höggi og lauk leik á pari vallarins. Hún spilaði einstaklega stöðugt golf og fékk 30 pör á holunum 36, fimm fleiri en næsti kylfingur mótsins.

Guðrún mætti Þóru Sigríði Sveinsdóttur, GR, í sextán manna úrslitunum, Emblu Hrönn Hallsdóttur, GKG, í átta manna úrslitunum og Perlu Sól í undanúrslitum mótsins í morgun.
Í úrslitaleiknum komst Guðrún snemma yfir og jók forskot sitt eftir því sem leið á hringinn. Hún tryggði sér sigur á þrettándu holu og þar með sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í holukeppni, en hún vann mótið einnig árin 2017 og 2021.
Við óskum Guðrúnu Brá og öðrum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn.
Hér má sjá úrslit höggleiksins
Hér má sjá úrslit allra leikja í holukeppninni
Íslandsmeistarar í holukeppni í kvennaflokki frá upphafi:
Alls hafa 20 leikmenn sigrað í kvennaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni frá árinu 1988 þegar mótið fór fyrst fram.
Ragnhildur Sigurðardóttir hefur sigrað oftast eða 6 sinnum alls (1990, 1993, 1997, 2000, 2001 og 2005), Ólöf María Jónsdóttirer með 5 titla alls (1995, 1996, 1998, 1999 og 2004), Karen Sævarsdóttir er með 4 titla alls. (1988,1991, 1992 og 1994). Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (2011, 2013 og 2020) og Guðrún Brá Björgvinsdóttir (2017, 2021, 2026) hafa sigrað þrisvar sinnum. Þrír leikmenn hafa sigrað tvívegis: Þórdís Geirsdóttir (1989 og 2007), Signý Arnórsdóttir (2009 og 2012) og Saga Traustadóttir (2019 og 2022). Saga er sú eina sem hefur skilað þessum titli til tveggja golfklúbba, en hún var Í GR árið 2019 og skipti síðar yfir í GKG.
| Ár | Nafn | Klúbbur | Fjöldi titla |
| 1988 | Karen Sævarsdóttir | GS | 1 |
| 1989 | Þórdís Geirsdóttir | GK | 1 |
| 1990 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 1 |
| 1991 | Karen Sævarsdóttir | GS | 2 |
| 1992 | Karen Sævarsdóttir | GS | 3 |
| 1993 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 2 |
| 1994 | Karen Sævarsdóttir | GS | 4 |
| 1995 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 1 |
| 1996 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 2 |
| 1997 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 3 |
| 1998 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 3 |
| 1999 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 4 |
| 2000 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 4 |
| 2001 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 5 |
| 2002 | Herborg Arnarsdóttir | GR | 1 |
| 2003 | Helga Rut Svanbergsdóttir | GM (GKj) | 1 |
| 2004 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 5 |
| 2005 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 5 |
| 2006 | Anna Lísa Jóhannsdóttir | GR | 1 |
| 2007 | Þórdís Geirsdóttir | GK | 1 |
| 2008 | Ásta Birna Magnúsdóttir | GK | 1 |
| 2009 | Signý Arnórsdóttir | GK | 1 |
| 2010 | Valdís Þóra Jónsdóttir | GL | 1 |
| 2011 | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 1 |
| 2012 | Signý Arnórsdóttir | GK | 2 |
| 2013 | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 2 |
| 2014 | Tinna Jóhannsdóttir | GK | 1 |
| 2015 | Heiða Guðnadóttir | GM | 2 |
| 2016 | Berglind Björnsdóttir | GR | 1 |
| 2017 | Guðrún Brá Björgvinsdóttir | GK | 1 |
| 2018 | Ragnhildur Kristinsdóttir | GR | 1 |
| 2019 | Saga Traustadóttir | GR | 1 |
| 2020 | ÓIafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 3 |
| 2021 | Guðrún Brá Björgvinsdóttir | GK | 2 |
| 2022 | Saga Traustadóttir | GKG | 2 |
| 2023 | Perla Sól Sigurbrandsdóttir | GR | 1 |
| 2024 | Anna Júlía Ólafsdóttir | GKG | 1 |
| 2025 | Heiðrún Anna Hlynsdóttir | GOS | 1 |
| 2026 | Guðrún Brá Björgvinsdóttir | GK | 3 |



