Birgir Björn Magnússon, Golfklúbbnum Keili, er Íslandsmeistari í holukeppni karla 2026 en hann sigraði Guðmund Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur, á fyrstu holu bráðabana eftir skemmtilegan leik. Þetta er í fyrsta skiptið sem Birgir vinnur mótið.
Aron Emil Gunnarsson, Golfklúbbi Selfoss, varð þriðji, en hann sigraði Veigar Heiðarsson, Golfklúbbi Akureyrar, á fimmtu holu bráðabana í leiknum um bronsverðlaunin.

Leiknar voru 36 holur í höggleik á föstudaginn þar sem efstu sextán kylfingarnir komust áfram í útsláttarhluta mótsins. Birgir var jafn í sjöunda sæti eftir höggleikinn á einu höggi undir pari.
Birgir mætti Sigurði Bjarka Blumenstein, GR, í sextán manna úrslitum mótsins og sigraði leikinn 3/2. Þá sigraði hann hinn efnilega Gunnar Þór Heimisson, GKG, 5/4 í átta manna úrslitunum og lagði Veigar Heiðarsson 2/0 í undanúrslitaleiknum.
Birgir byrjaði úrslitaleikinn af krafti og var kominn þrjár holur upp eftir einungis sex holur. Eftir það tók við erfiður kafli Keilismannsins, og var Guðmundur Ágúst kominn tvær holur upp eftir þrettán. Birgir sótti tvær holur til baka á lokakaflanum, endaði hringinn á tveimur fuglum og fékk þann þriðja í röð á fyrstu holu bráðabanans.
Þetta var annað mót Birgis á tímabilinu, en hann lék einnig í fyrsta mótinu sem var haldið á sama velli um miðjan maí. Þar endaði hann jafn í 20. sæti á sex höggum yfir pari.
Við óskum Birgi Birni og öðrum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn.
Hér má sjá úrslit höggleiksins
Hér má sjá úrslit allra leikja í holukeppninni
Íslandsmeistarar í holukeppni í karlaflokki frá upphafi:
Alls hafa 28 leikmenn fagnað þessum titli í karlaflokki frá árinu 1988 þegar Íslandsmótið í holukeppni fór fyrst fram.
Birgir Leifur Hafþórsson er sigursælastur með alls fjóra titla 1994, 1996, 2004 og 2010. Björgvin Sigurbergsson er með þrjá titla, 1992, 1998 og 200.
Sex leikmenn hafa sigrað tvívegis, Úlfar Jónsson (1988 og 1993), Haraldur Heimisson (2001 og 2003), Ottó Sigurðsson (2005 og 2007), Kristján Þór Einarsson (2009 og 2014), Axel Bóasson (2015 og 2020) og Rúnar Arnórsson (2019 og 2020). Rúnar er sá eini sem hefur náð að verja titilinn í karlaflokki í þau 36 skipti sem mótið hefur farið fram.
| Ár | Nafn | Klúbbur | Fjöldi titla | Staðsetning |
| 1988 | Úlfar Jónsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
| 1989 | Sigurður Pétursson | GR | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
| 1990 | Sigurjón Arnarsson | GR | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
| 1991 | Jón Karlsson | GR | 1 | Strandarvöllur, GHR |
| 1992 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
| 1993 | Úlfar Jónsson | GK | 2 | Hvaleyrarvöllur, GK |
| 1994 | Birgir Leifur Hafþórsson | GL | 1 | Strandarvöllur, GHR |
| 1995 | Örn Arnarson | GA | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
| 1996 | Birgir Leifur Hafþórsson | GL | 2 | Hólmsvöllur, GS |
| 1997 | Þorsteinn Hallgrímsson | GV | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
| 1998 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 2 | Grafarholtsvöllur, GR |
| 1999 | Helgi Þórisson | GS | 1 | Hólmsvöllur, GS |
| 2000 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 3 | Strandarvöllur, GHR |
| 2001 | Haraldur Heimisson | GR | 1 | Garðavöllur, GL |
| 2002 | Guðmundur I. Einarsson | GR | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
| 2003 | Haraldur Heimisson | GR | 2 | Hólmsvöllur, GS |
| 2004 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | 3 | Grafarholtsvöllur, GR |
| 2005 | Ottó Sigurðsson | GKG | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
| 2006 | Örn Ævar Hjartarson | GS | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
| 2007 | Ottó Sigurðsson | GKG | 2 | Urriðavöllur, GO |
| 2008 | Hlynur Geir Hjartarson | GK | 1 | Korpúlfsstaðavöllur, GR |
| 2009 | Kristján Þór Einarsson | GM | 1 | Kiðjabergsvöllur, GBR |
| 2010 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | 4 | Garðavöllur, GL |
| 2011 | Arnór Ingi Finnbjörnsson | GR | 1 | Strandarvöllur, GHR |
| 2012 | Haraldur Franklín Magnús | GR | 1 | Leirdalsvöllur, GKG |
| 2013 | Guðmundur Ágúst Kristjánsson | GR | 1 | Hamarsvöllur, GB |
| 2014 | Kristján Þór Einarsson | GM | 2 | Hvaleyrarvöllur, GK |
| 2015 | Axel Bóasson | GM | 1 | Jaðarsvöllur, GA |
| 2016 | Gísli Sveinbergsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
| 2017 | Egill Ragnar Gunnarsson | GKG | 1 | Vestmannaeyjavöllur, GV |
| 2018 | Rúnar Arnórsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
| 2019 | Rúnar Arnórsson | GK | 2 | Garðavöllur, GL |
| 2020 | Axel Bóasson | GK | 2 | Jaðarsvöllur, GA |
| 2021 | Sverrir Haraldsson | GM | 1 | Þorláksvöllur, GÞ |
| 2022 | Sigurður Bjarki Blumenstein | GR | 1 | Hlíðavöllur, GM |
| 2023 | Aron Snær Júlíusson | GKG | 1 | Hamarsvöllur, GB |
| 2024 | Logi Sigurðsson | GS | 1 | Garðavöllur, GL |
| 2025 | Böðvar Bragi Pálsson | GR | 1 | Hlíðavöllur, GM |
| 2026 | Birgir Björn Magnússon | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |



