Golfhátíðin á Flúðum fór fram dagana 11.-12. júní 2026. Mikil gleði ríkti á Selsvelli og á Flúðum dagana tvo, þar sem ungir kylfingar komu saman, léku sér, æfðu og nutu samverunnar í frábæru umhverfi. Völlurinn skartaði sínu fegursta og veðrið lék við þátttakendur báða dagana.
Gist var í Íþróttahúsinu á Flúðum og dagskráin var fjölbreytt frá morgni til kvölds. Farið var í sund, leiki og alls kyns þrautir, auk þess sem þátttakendur fengu að kynnast golfíþróttinni á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt.
Í stað þess að leika hefðbundinn 9 eða 18 holu hring var Selsvelli skipt upp í margar stöðvar. Þar fengu þátttakendur meðal annars að spila, æfa vipp og slátt undir handleiðslu landsliðs- og atvinnukylfinga. Einnig var settur upp púttvöllur og fótboltagolfvöllur sem reyndust mjög vinsælir á meðal krakkanna.
Morgun-, hádegis- og kvöldmatur var í boði í golfskálanum og var öll umgjörð til mikillar fyrirmyndar.
Við þökkum GF kærlega fyrir frábæra framkvæmd, hlýjar móttökur og framlag þeirra til hátíðarinnar. Einnig færum við þátttakendum, foreldrum, sjálfboðaliðum, landsliðs- og atvinnukylfingum bestu þakkir fyrir að gera dagana á Flúðum jafn eftirminnilega og raun bar vitni.












