GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Two male golfers mid-swing with a large US Open logo centered between them on a blurred course background.
Dagbjartur og Gunnlaugur leika báðir í lokaúrtökumótinu annað árið í röð
Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, eru á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á The Lakes Golf & Country Club vellinum í Westerville, Ohio.

Green golf hole with flagstick on a well-manicured putting green, water and dense trees in the background, and a tall antenna tower to the left.
Frá vellinum

Lokaúrtökumót U.S. Open er síðasta stigið í átt að þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi, og aðeins þeir efstu tryggja sér sæti á sjálfu U.S. Open mótinu. Tíu úrtökumót fara fram í Bandaríkjunum og Kanada í dag og má þar finna marga kylfinga frá PGA mótaröðinni, aðra atvinnukylfinga sem og fremstu áhugakylfinga heims.

Gunnlaugur Árni er jafn í fjórða sæti eftir fyrri átján holur mótsins, tveimur höggum á eftir efsta manni. Hann lék hringinn á 67 höggum eða fimm undir pari. Gunnlaugur fékk fjóra fugla og fimm pör á fyrri níu holunum og fylgdi því eftir með þremur pörum á holum tíu til tólf. Eini skolli hringsins kom á þrettándu holunni, en hann svaraði honum með frábærum erni á sextándu holunni.

Gunnlaugur er því í góðum málum fyrir seinni umferð mótsins sem hefst innan skamms. Stutt er þó á milli manna, en fimm aðrir kylfingar léku hringinn einnig á fimm höggum undir pari.

Dagbjartur lék á 73 höggum, einu höggi yfir pari og er jafn í 37. sæti. Íslandsmeistarinn fékk par á allar holurnar á fyrri níu og opnaði seinni níu holurnar á fugli. Skolli á tólftu og tvöfaldur skolli á fjórtándu reyndust einu töpuðu högg hringsins, en Dagbjartur fékk einn fugl til viðbótar á lokaholunum.

Við sendum okkar mönnum góða strauma og óskum þeim góðs gengis.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ