GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Aerial view of a coastal island golf course with the sea in the background, featuring event logos and the text 'Skráning er hafin' and '30.-31. maí Nesvöllur'.
Golf 14 tímabilið hefst þann 30. maí
Auglýsing

Fyrsti viðburður Golf 14 tímabilsins fer fram dagana 30.-31. maí á Nesvelli Nesklúbbsins. Þessi mót eru hugsuð sem fyrstu skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan er lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin.

Skráning er hafin, en henni lýkur mánudaginn 25. maí kl. 23:59.

13-14 ára leika af teigum merktum 44 og spila 27 holur. 18 holur á laugardeginum 30. maí og 9 holur á sunnudeginum 31. maí.

12 ára og yngri leika af teigum merktum 33 og spila 18 holur. 9 holur á laugardeginum 30. maí og 9 holur á sunnudeginum 31. maí.

10 ára og yngri leika af teigum merktum 33 og spila 18 holur. 9 holur á laugardeginum 30. maí og 9 holur á sunnudeginum 31. maí.

Einnig verður liðakeppni í mótinu, þar sem teiggjöfin raðar kylfingum í lið.

Á sunnudeginum fer fram púttkeppni á 9 holu púttvelli á svæðinu, þar sem keppendur leika í skemmtilegri aukakeppni. Skor allra þátttakenda verða skráð og sá leikmaður sem fer völlinn á fæstum höggum stendur uppi sem púttmeistari og hlýtur verðlaun.

Keppendur sem eiga snemma rástíma á sunnudeginum pútta eftir hringinn sinn en þeir sem eiga seinni rástíma pútta áður en þeir hefja leik.

Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í öllum flokkum og svo verður pylsupartý að leik loknum.

Hægt er að nálgast skráningu, alla keppnisskilmála og aðrar upplýsingar hér

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ