GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Promotional poster for a youth event: Síðasti skráningardagur at Porláksvöllur, May 23–25, with a coastal golf-course landscape
Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar fer fram 23.-25. maí
Auglýsing

Í dag er síðasti skráningardagur í fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar, sem fram fer í Þorlákshöfn dagana 23.-25. maí. Skráning hófst þann 30. apríl og lýkur í dag, þann 17. maí kl. 23:59.

Keppt er í flokki 15-18 ára og leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar. Að loknum 36 holum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. 

Veitt verða verðlaun fyrir 1.-3. sæti í báðum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta árangur í eftirfarandi flokkum:

Stúlkur 15-16 ára

Stúlkur 17-18 ára

Piltar 15-16 ára

Piltar 17-18 ára

Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ