GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Mynd - Luke Walker
Auglýsing

Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús endaði jafn í 41. sæti Italian Challenge Open mótsins, sem fór fram dagana 7.-10. maí á Ítalíu. Mótið var hans fimmta á HotelPlanner Tour tímabilinu, en mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu.

Haraldur skilaði inn gífurlega stöðugum hringjum, en hann lék á 70-70-69-70 og lauk leik á níu höggum undir pari í heildina. Samkvæmt Haraldi sjálfum var völlurinn erfiður og leikskipulagið íhaldssamt, en gott að komast út á völl.

Þetta var fimmta mót atvinnukylfingsins á tímabilinu, en það fyrsta eftir langa pásu. Skipulag mótaraðarinnar breyttist með stuttum fyrirvara í vor og hafði Haraldur því ekki leikið síðan í febrúar. Nú fer hins vegar allt á fullt og verður dagskráin þétt næstu mánuði.

Profile header with name Haraldur Magnus; four-round golf scorecard showing hole-by-hole scores (R1–R4) on a dark UI.
Sjöunda holan reyndist gjöful

Hér má sjá úrslit mótsins

Næsta mót er Challenge de Catalunya í Girona á Spáni og verður Haraldur þar á meðal keppenda. Veðurspáin er ekki góð á svæðinu næstu daga, en Haraldur segist vona að það verði sem kaldast.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ