Þrír íslenskir kylfingar voru á meðal keppenda í Royal Unibrew Championship mótinu í Danmörku sem lauk í dag: Dagbjartur Sigurbrandsson, Sigurður Arnar Garðarsson og Hlynur Bergsson. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni, sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu og léku okkar kylfingar frábært golf.
Dagbjartur Sigurbrandsson endaði fjórði í mótinu á ellefu höggum undir pari í heildina. Íslandsmeistarinn var í toppbaráttu frá fyrsta hring, en hann lék hringina þrjá á 67-71-67. Frábær endasprettur skilaði honum aftur upp í efstu sætin, en Dagbjartur endaði lokahringinn á þremur fuglum í röð.

Sigurður Arnar lék einnig mjög vel í mótinu og lauk leik höggi á eftir Dagbjarti á tíu undir í heildina. Sigurður lék hringi sína á 69-69-68 og fékk átta fugla á lokahringnum í dag. Þetta er enn eitt mótið sem Sigurður leikur vel í, á Nordic Golf League mótaröðinni. Hann hefur nú endað í efstu níu sætunum í þremur af fjórum mótum sínum á tímabilinu.
Hlynur Bergsson náði einnig í gegnum niðurskurð mótsins en datt niður um 24 sæti á lokahringnum, sem hann lék á 75 höggum. Hlynur endaði jafn í 42. sæti mótsins á einu höggi undir pari í heildina.
Með þessu sækja þremeningarnir sér dýrmæt stig á stigalista mótaraðarinnar. Dagbjartur fer upp í 20. sætið, Sigurður í það 32. og Hlynur er í 41. sæti. Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu.


