GSÍ mótaröðin 2026 fer af stað um miðjan maí þegar Reykjanesmót GS og GSG verður leikið dagana 15.-17. maí.
Leikinn er 54 holu höggleikur í flokki karla og kvenna sem dreifist á þrjá keppnisdaga. Fyrsti og þriðji hringurinn er leikinn á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja, en annar hringurinn er leikinn á Kirkjubólsvelli Golfklúbbs Sandgerðis. Eftir annan keppnisdag verður niðurskurður þar sem efstu 70% keppenda í hvorum flokki komast áfram.
Hámarksfjöldi keppenda er 144 og er mótið opið bæði áhuga- og atvinnukylfingum. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. Ef skráningar fara yfir hámarksfjölda ræður forgjöf hvaða keppendur komast inn í mótið.
Skráning í mótið er hafin, en henni lýkur kl. 23:59 á þriðjudegi fyrir mót. Mótsgjald er 17.900 krónur í bæði karla- og kvennaflokki.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum. Sigurvegarar fá 140.000 krónur, annað sæti hlýtur 100.000 krónur og þriðja sæti 60.000 krónur.
Í hlekk hér að neðan má nálgast allar upplýsingar og skráningu í mótið.
