Dagbjartur Sigurbrandsson og Jóhann Frank Halldórsson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, eru á meðal keppenda á Nordic Golf League móti sem hefst í dag.
Mót vikunnar á Nordic Golf League er Big Green Egg Blekinge Open, sem fram fer í Svíþjóð. Leikið er á Trummenäs GK í Blekinge. Völlurinn krefst nákvæmni af teig og yfirvegaðrar ákvarðanatöku samkvæmt keppendum, en veðurspáin er góð og því tækifæri til að sækja.

Dagbjartur hefur verið iðinn á mótaröðinni í sumar og staðið sig vel. Íslandsmeistarinn hefur náð í gegnum niðurskurð í fjórum af átta mótum og tvisvar endað jafn í áttunda sæti. Hann er 29. á stigalista mótaraðarinnar, sem setur hann í góða stöðu þegar líður á tímabilið. Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu.
Fyrir Jóhann Frank er mótið í Blekinge hans fyrsta verkefni á mótaröðinni á þessu ári. Það verður því áhugavert að fylgjast með hvernig honum tekst til í sínu fyrsta móti.
Jóhann hefur leik kl. 13:20 og Dagbjartur kl. 13:40, en hér má fylgjast með skori þeirra í mótinu.
