Mót vikunnar á LET mótaröðinni (Ladies European Tour) fer fram í Suður-Afríku þar sem Investec SA Women’s Open er á dagskrá dagana 23.-26. apríl. Mótið er haldið á Royal Cape Golf Club í Höfðaborg og er seinna mótið af tveimur í Suður-Afríku.
Mótið er sameiginlegt verkefni LET mótaraðarinnar og Sunshine Ladies Tour og laðar að sér sterkan alþjóðlegan keppendahóp. Alls taka um 132 kylfingar þátt frá tugum þjóða og leiknar eru 72 holur með verðlaunafé upp á um 50 milljónir króna. Investec SA Women’s Open er einn af hápunktum Sunshine Ladies Tour tímabilsins og hefur mótið verið haldið frá árinu 1988.

Íslenski atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir er á meðal keppenda mótsins og verður þetta annað mót hennar á LET tímabilinu. Hún lék í Joburg Ladies Open í síðustu viku en náði ekki í gegnum niðurskurð. Fyrr í vor lék Guðrún í fjórum mótum Sunshine mótaraðarinnar í Suður-Afríku. Íslandsmeistarinn lék þar frábært golf og endaði tvisvar sinnum í efstu þremur sætunum.
Guðrún Brá hefur leik kl. 08:50 að staðartíma – hér er hægt að fylgjast með stöðu mótsins.
