Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék í sínu fyrsta LET móti á tímabilinu þegar hún var á meðal keppenda í Joburg Ladies Open í Suður-Afríku. Mótið fer fram dagana 16.-19. apríl á Randpark Golf Club vellinum í Randburg, en Guðrún náði ekki í gegnum niðurskurð eftir annan hring.
Guðrún lék hringi sína á 73-74 höggum og lauk leik á einu höggi yfir pari í heildina.
Á fyrri hringnum fékk Íslandsmeistarinn þrjá fugla, þrjá skolla og var jöfn í 74. sætinu að honum loknum. Efstu 60 kylfingar mótsins komast í gegnum niðurskurð eftir annan hring.
Guðrún sló vel samkvæmt tölfræði mótaraðarinnar, hitti þrettán af fjórtán brautum og fjórtán flatir.

Á öðrum hring fékk Guðrún tvo fugla og þrjá skolla. Hún lauk leik í 76. sæti mótsins, þremur höggum frá niðurskurðarlínunni.

Mótið er það sjöunda á LET mótaröðinni í ár en það fyrsta hjá Guðrúnu á tímabilinu. Íslandsmeistarinn vann sér inn þátttökurétt á mótaröðinni með frábærum árangri í úrtökumóti í desember.
Næsta mót Guðrúnar á mótaröðinni verður einnig í Suður-Afríku, en hún verður á meðal keppenda í Investec SA Women’s Open sem hefst þann 23. apríl.
