Stór hópur íslenskra afrekskylfinga er á meðal keppenda á Sand Valley Spring Series Final mótinu sem fer fram í Póllandi dagana 17.-19. apríl. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu og er þetta þriðja og síðasta mót hópsins á Sand Valley svæðinu. Íslensku kylfingarnir eru:
- Aron Snær Júlíusson, GKG
- Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
- Daníel Ísak Steinarsson, GK
- Hlynur Bergsson, GKG
- Logi Sigurðsson, GS
- Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
- Skúli Gunnar Ágústsson, GKG
Leikið er á ný á Sand Valley Golf Resort svæðinu í norðurhluta Póllands. Í fyrsta móti hópsins voru þeir Logi Sigurðsson og Sigurður Arnar þeir einu sem komust í gegnum niðurskurð. Báðir léku þeir gott golf í mótinu og enduðu jafnir í áttunda sætinu.
Í öðru mótinu enduðu Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson báðir á meðal efstu tíu kylfinga mótsins. Hlynur endaði einn í sjöunda sæti en Dagbjartur var höggi á eftir honum, jafn í áttunda. Daníel Ísak Steinarsson náði einnig í gegnum niðurskurð og endaði jafn í 31. sæti.

Aron Snær og Skúli Gunnar leika saman í holli í dag, og það gera Dagbjartur og Daníel Ísak einnig. Þriðja og síðasta Íslendingaholl mótsins inniheldur félagana Sigurð Arnar og Loga, en Hlynur er eini Íslendingurinn í sínu holli.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Einnig er hægt að vinna sér inn þátttökurétt með því að vinna þrjú mót á sama tímabilinu. Haraldur Franklín Magnús leikur á HotelPlanner Tour, en sú mótaröð hefst aftur í maí.
