GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Andrea, Hulda Clara og Ragnhildur
Auglýsing

Keppnistímabil LET Access mótaraðarinnar hefst í dag þegar Madaëf Golfs Ladies Open mótið fer fram á Royal Golf de Fes golfvellinum í Marokkó. Með mótinu hefst nýtt tímabil á þessari næst sterkustu mótaröð Evrópu, en leikið verður um alla heimsálfuna á næstu mánuðum.

Þrír íslenskir kylfingar eru skráðir til leiks í mótið: Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Ragga Kristinsdóttir.

Hulda Clara Gestsdóttir er að hefja sitt fyrsta tímabil sem atvinnukylfingur. Íslandsmeistarinn fyrrverandi lauk námi sínu við Denver háskólann í Bandaríkjunum á síðasta ári og stefnir hátt. Hún lék gott golf á undirbúningstímabili sínu í Suður-Afríku og hafnaði m.a. í fjórða sæti á Jabra Ladies Classic móti Sunshine mótaraðarinnar.

Hulda Clara slær upphafshögg sitt á Íslandsmótinu í golfi

Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur ‘Ragga’ Kristinsdóttir koma inn í tímabilið með mikla reynslu og sjálfstraust eftir gott gengi á síðasta ári. Ragga endaði áttunda á stigalista mótaraðarinnar og Andrea endaði tólfta. Efstu sjö kylfingarnir í lok tímabils fá þátttökurétt á LET mótaröðinni, svo engu mátti muna að þær hefðu náð alla leið.

Báðar vöktu þær athygli fyrir góðan árangur sinn. Andrea var fjórum sinnum á meðal tíu efstu á mótaröðinni í fyrra og endaði best í þriðja sætinu á Montauban Ladies Open mótinu í Frakklandi. Ragga varð önnur eftir bráðabana á Hauts de France Pas de Calais Golf Open mótinu í Frakklandi og aftur varð hún önnur í Swedish Stroke Play mótinu. Hún varð svo fyrsti íslenski kvenkylfingurinn til að vinna alþjóðlegt atvinnumót, þegar hún sigraði Vasteras Open mótið í Svíþjóð.

Ragga hefur unnið markvisst að því að taka rétt skref í áttina að sínum markmiðum og segist spennt að hefja tímabilið, í viðtali við LET Access. Hún leggur áherslu á að nálgast leikinn með jákvæðari hugsun og meiri ró, eftir að hafa lært mikið á síðasta tímabili. Í viðtalinu kemur fram að veturinn hafi farið í undirbúning, bæði tæknilega og andlega, og að hún ætli sér að vera stöðugri í leik sínum. Aðalmarkmiðið verður þó áfram að vinna sér inn sæti á LET mótaröðinni í sumar.

Ragga á móti LET Access

Fyrsta mótið í Marokkó hefst í dag. Ragga hefur leik kl. 09:14, Hulda kl. 09:47 og Andrea kl. 13:20. Spennandi verður að fylgjast með okkar atvinnukylfingum koma sér af stað í tímabilið.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ