Logi Sigurðsson og Sigurður Arnar Garðarsson léku frábært golf á Sand Valley Open mótinu í Póllandi sem lauk í dag. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni, sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu.
Stór hópur íslenskra afrekskylfinga gerði sér ferð til Póllands, en Logi og Sigurður voru þeir einu sem náðu í gegnum niðurskurðinn. Báðir sækja þeir sér því dýrmæt stig á stigalista mótaraðarinnar, en fimm efstu kylfingarnir í lok tímabils vinna sér inn þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni.
Sigurður var á meðal efstu kylfinga frá fyrsta hring. Hann hóf mótið af krafti og leit aldrei um öxl. Spilamennskan var stöðug og lék Sigurður hringi sína á 69-70-71 höggi og lauk leik á sex undir pari í heildina.
Par 4 holurnar reyndust Sigurði vel, en þar var hann með næstbesta meðalskor allra kylfinga (3.80).

Logi lék hringi sína á 73-70-67 höggum og lauk einnig leik á sex undir pari í heildina. Logi bætti sig á hverjum degi og sótti meðal annars sjö fugla á lokahringnum, sem hann lék fimm undir pari.
Einungis örfáir kylfingar sóttu fleiri högg á völlinn en Logi, sem fékk þrettán fugla og einn örn í mótinu.

Íslenski hópurinn fer ekki langt, en næsta mót er á sama svæði og hefst eftir tvo daga. Það verður spennandi að fylgjast áfram með gengi okkar manna.
Hér að neðan má sjá skor allra íslensku keppendanna.
| Klúbbur | Kylfingur | Skor | Sæti |
| GKG | Aron Snær Júlíusson | 73 – 76 (+5) | MC |
| GR | Dagbjartur Sigurbrandsson | 74 – 73 (+3) | MC |
| GK | Daníel Ísak Steinarsson | 81 – 78 (+15) | MC |
| GKG | Hlynur Bergsson | 71 – 80 (+7) | MC |
| GS | Logi Sigurðsson | 73 – 70 – 67 (-6) | T8 |
| GKG | Sigurður Arnar Garðarsson | 69 – 70 – 71 (-6) | T8 |
| GKG | Skúli Gunnar Ágústsson | 79 – 74 (+9) | MC |
