Stór hópur íslenskra afrekskylfinga leikur í Sand Valley Open mótinu sem fer fram í Póllandi dagana 9.-11. apríl. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu. Íslensku kylfingarnir eru:
- Aron Snær Júlíusson, GKG
- Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
- Daníel Ísak Steinarsson, GK
- Hlynur Bergsson, GKG
- Logi Sigurðsson, GS
- Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
- Skúli Gunnar Ágústsson, GKG
Mótið er leikið á Championship vellinum á Sand Valley Golf Resort svæðinu, en völlurinn er 6546 metrar af öftustu teigum.

Seinka þurfti leik á fyrsta keppnisdegi um 2 klukkustundir, en mikið frost var á svæðinu og grasið því ekki klárt snemma um morguninn. Daníel Ísak og Dagbjartur fóru fyrstir út af íslensku kylfingunum. Daníel lék hringinn á 81 höggi, níu yfir pari vallarins. Dagbjartur lék á 74 höggum, tveimur yfir pari, og er jafn í 74. sætinu fyrir annan hring mótsins. Efstu 50 kylfingarnir komast í gegnum niðurskurð.
Logi og Aron Snær fóru út á sama tíma í gær og komu inn á sama skorinu, 73 höggum. Skorkort þeirra voru ekki ósvipuð og fengu félagarnir m.a. báðir fugla á 4. og 5. holu. Þeir eru jafnir í 51. sætinu og því alveg við niðurskurðarlínuna.
Sigurður Arnar lék best allra íslensku kylfinganna, en hann kom í hús á þremur höggum undir pari og er jafn í sjötta sæti mótsins. Sigurður hóf hringinn af miklum krafti og var kominn þrjá undir par eftir fimm holur. Á síðustu þrettán holunum fékk hann ellefu pör, einn fugl og einn skolla. Flottur hringur hjá Sigurði sem stefnir langt í mótinu.
Hlynur og Skúli hófu leik seint í gær og náðu ekki að klára hringi sína fyrr en í morgun. Hlynur lék á einu höggi undir pari, og er jafn í 18. sæti mótsins. Skúli lék á 79 höggum, sjö yfir pari.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Einnig er hægt að vinna sér inn þátttökurétt með því að vinna þrjú mót á sama tímabilinu. Haraldur Franklín Magnús leikur á HotelPlanner Tour, en sú mótaröð hefst aftur í maí.
