Tuttugu íslenskir landsliðskylfingar eru á meðal keppenda í GJG Juniors International mótinu í Portúgal sem fer fram dagana 2.-5. apríl. Mótið er leikið á PGA Aroeira 1 vellinum í Lissabon og er seinna mót hópsins í þessari keppnisferð.
76 kylfingar taka þátt í mótinu og eru þar 40 Íslendingar, en tuttugu efnilegir kylfingar frá golfklúbbum landsins taka þátt í mótinu ásamt landsliðunum.
Eva Kristinsdóttir, GM, lék best allra í kvennaflokki á fyrsta hring og kom í hús á 70 höggum, tveimur undir pari vallarins. Eva fékk fjóra fugla og tvo skolla á hringnum.
Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, sem sigraði fyrra mót hópsins, lék næstbest á fyrsta hring. Hún kom í hús á 77 höggum og er jöfn í 4. sætinu að átján holum liðnum.
Sex íslenskir kylfingar eru í efstu tíu sætunum.

Í karlaflokki var það Björn Breki Halldórsson, GKG, sem lék best allra Íslendinga. Hann lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur undir pari og er í öðru sæti mótsins.
Arnar Daði Svavarsson, GKG, er þriðji en hann lék á pari vallarins. Bilið á milli efstu kylfinga er lítið og verður hart barist um verðlaunasæti.

