Fyrstu umferð Landsmótsins í golfhermum 2026 er lokið og ljóst hvaða kylfingar eru komnir áfram í næstu umferð. Mikill fjöldi þátttakenda var skráður í mótið í ár, en 268 kylfingar hófu leik.
Efstu 48 karlarnir og efstu 24 konurnar komust áfram í næstu umferð mótsins, sem fer fram dagana 17. mars – 27. apríl. Þar leika bestu kylfingar fyrstu umferðarinnar 36 holur á sama velli, og halda tólf bestu karlarnir og tólf bestu konurnar áfram í úrslitakeppnina.
Í karlaflokki var það Aron Snær Júlíusson sem lék best. Hann spilaði Korpúlfsstaðavöll á tíu höggum undir pari, einu höggi betur en klúbbfélagi hans úr GKG, Hjalti Hlíðberg Jónasson.
Hér að neðan má sjá sjö efstu karlkylfingana úr fyrstu undankeppninni.

Hér má sjá úrslit fyrstu umferðar karlaflokksins
Ríkandi Landsmeistari kvenna í golfhermum, Ragnhildur Kristinsdóttir, lék best allra í kvennaflokknum. Hún lauk leik á níu höggum undir pari, fékk níu fugla, örn og tvo skolla. Frábær hringur hjá Ragnhildi sem lék tveimur höggum betur en ríkjandi stigameistari GSÍ mótaraðarinnar, Heiðrún Anna Hlynsdóttir.

Hér má sjá úrslit fyrstu umferðar kvennaflokksins
Úrslitakeppnin fer fram laugardaginn 2. maí í Íþróttamiðstöð GKG. Leiknar eru þar 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum.
Mótið hefur heppnast afar vel síðustu ár og verður sýnt frá úrslitakeppninni í beinni útsendingu, bæði á miðlum GSÍ og í sjónvarpi.

