Kristall og Golfsamband Íslands hafa skrifað undir áframhaldandi samstarfssamning og verður drykkurinn áfram hluti af GSÍ fjölskyldunni.
„Við erum virkilega ánægð með samstarfið á liðnum árum og hefur Kristall verið stoltur samstarfsaðili við GSÍ undanfarinn ár. Framundan eru spennandi tímar í starfi GSÍ sem verður gaman að taka þátt í,” segir Davíð Sigurðsson vörumerkjastjóri Kristal“.
„Við hjá Golfsambandi Íslands erum virkilega spennt fyrir áframhaldandi samstarfi við Kristal. Við sjáum marga fleti í þessu samstarfi á komandi árum á mörgum sviðum. Við þökkum Kristal fyrir stuðning við golfhreyfinguna á undanförnum árum og hlakkar okkur til áframhaldandi samstarfs. “ Sagði Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ“.

