Dómaranefnd GSÍ stendur fyrir héraðsdómaranámskeiði í febrúar mánuði eins og hefur verið gert síðustu ár. Fyrirlestrar verða 17., 19., 23. og 25. febrúar 2026, kl. 19:30 – 22:00. Fyrirlestrar eru sendir út á netinu og einnig teknir upp þannig að það er hægt að horfa þá aftur eða eftir hentugleika.
Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ.
Ekki er skilyrði að fara í prófið þó að fólk sæki námskeiðið. Prófið er rafrænt próf tekið á netinu þannig að það er engin fyrirstaða fyrir aðila á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.
Það er ekki skilyrði að hafa setið námskeiðið til að geta tekið prófið. Þó er krafa að skrá sig á námskeiðið svo hægt sé að senda viðkomandi upplýsingar um námskeiðsefni og tengla á prófið. Ætlast er til þess að þeir sem sitja héraðsdómaranámskeiðið byrji á því að undirbúa sig með því að fara í gegnum 1.stigs golfregluskóla R&A.
Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að skrá sig hér Skráning á námskeið eða senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is með (kennitölu, nafni og heiti golfklúbbs).
Dómaranefndin vill skora á forráðamenn golfklúbba að ræða við þá félaga sem þeir telja að gætu haft áhuga á að starfa fyrir klúbbinn á sviði mótahalds og dómgæslu og hvetja þá til að afla sér dómararéttinda.
