Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að bæta stöðu sína á heimslista áhugakylfinga eftir góðan árangur í öðru háskólamóti ársins í Illinois í síðustu viku.
Mótið í síðustu viku, Jackson T. Stephens Cup, var gífurlega sterkt. Þangað mættu sex af sterkari skólum háskólagolfsins. Gunnlaugur endaði annar og hlaut 15,3 stig á heimslistanum fyrir árangurinn í mótinu sem er hans hæsta stigasöfnun á ferlinum. Til samanburðar fékk hann 14,9 stig fyrir sinn fyrsta sigur í háskólagolfinu í október 2024.
Með árangrinum fór Gunnlaugur Árni upp í 10. sætið á heimslista áhugakylfinga, sem var uppfærður í gær. Hann hefur verið á miklu flugi upp listann síðastliðna 12 mánuði og hefur aldrei verið ofar.
Hér má sjá listann í heild sinni
Í gær var Gunnlaugur einnig valinn SEC golfari vikunnar fyrir góðan árangur síðustu missera. Þar er farið yfir spilamennsku hans í mótinu í síðustu viku og Gunnlaugi hrósað fyrir sinn agaða leik.

Tímabilið hefur farið af stað af krafti hjá okkar manni, sem stefnir á efsta sæti heimslistans á næstu árum. Enginn íslenskur kylfingur hefur náð ofar á heimslistann, en besta árangur karla má sjá hér að neðan.
Besti árangur á heimslista áhugakylfinga karla
Kylfingur | Besta sæti | Gerðist atvinnukylfingur |
Gunnlaugur Árni Sveinsson | 10. | |
Gísli Sveinbergsson | 99. | |
Aron Snær Júlíusson | 108. | 2021 |
Ólafur Björn Loftsson | 110. | Vika 36, 2012 |
Haraldur Franklín Magnús | 136. | Vika 9, 2017 |
Axel Bóasson | 136. | Vika 21, 2016 |
Bjarki Pétursson | 156. | Vika 6, 2020 |