GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Sex íslenskir kylfingar hefja í dag leik á 1. stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour, sem er sterkasta mótaröð Evrópu. Alls eru sjö íslenskir kylfingar skráðir til leiks á 1. stigi úrtökumótanna, en Guðmundur Ágúst Kristjánsson er kominn áfram á 2. stig eftir frábæra spilamennsku.

Á 1. stiginu fara úrtökumótin fram á tíu keppnisstöðum á tímabilinu 26. ágúst – 10. október.  Það má gera ráð fyrir að um 20 efstu af hverjum velli fyrir sig komist áfram á 2. stig úrtökumóta. 

Mótið sem íslensku kylfingarnir leika á fer fram á Frederikshavn Golfklub í Danmörku dagana 23.-26. september. Leiknir eru fjórir hringir á keppnisdögunum fjórum.

Frederikshavn Golfklub

Okkar þátttakendur í mótinu eru:

  • Aron Snær Júlíusson, GKG
  • Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
  • Hákon Örn Magnússon, GR
  • Hlynur Bergsson, GKG
  • Kristófer Orri Þórðarson, GKG
  • Sigurður Arnar Garðarsson, GKG

Allir hafa þeir leikið í mörgum mótum í sumar, bæði hér á landi sem og í Nordic Golf League mótaröðinni.

Dagbjartur varð eftirminnilega Íslandsmeistari karla í höggleik fyrr í sumar. Á sama tíma vann Hlynur Bergsson sitt fyrsta alþjóðlega mót, þegar hann stóð uppi sem sigurvegari á Forsbacka Open í Svíþjóð. Piltarnir mæta vel undirbúnir til leiks, en þeir hafa margir verið saman í æfingabúðum fyrir mótið. Þar léku þeir m.a. Las Colinas völlinn á Spáni, líkt og sjá má á TikTok rás Dagbjarts.

@dagbjarturs

Playing 6 holes at Las Colinas Country Club in Spain 🌴☀️🇪🇸 #golf #golftiktok #golfswing #Spain #Iceland

♬ original sound – Dagbjartur Sigurbrandsson

Hægt er að fylgjast með stöðu mótsins hér

Við munum fylgjast með gengi íslensku kylfinganna á næstu dögum, bæði á golf.is og á öðrum miðlum GSÍ.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ