Vörður og GSÍ bjóða þér að spila spennandi golfleik.
Líkt og undanfarin ár bjóða Vörður og GSÍ þér að spila spennandi golfleik á golf.vordur.is þar sem þú getur spreytt þig á golfreglunum og reynt á þekkingu þína. Leikurinn býður upp á stigagjöf, tímatöku og fleira.
Leikurinn er í stöðugri þróun, og eru spurningar nú yfir 300 talsins.
Allir sem taka þátt eiga möguleika á að vinna lúxus golfferð fyrir tvo á Salobre á Gran Canaria í boði Golfsögu og Verdi travel.
Verðmæti aðalvinnings er rúmlega 700 þúsund krónur.
Stórglæsileg vikuferð fyrir tvo:
- Áætlunarflug með Icelandair til & frá Las Palmas
- 23kg taska og golfsett 15kg
- Rúta til og frá flugvelli
- Gisting með morgun- og kvöldverði
- 18 holur á dag með golfbíl
- Þar af einn hringur á Maspalomas vellinum
- Traust fararstjórn
Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta árangurinn:
- 1. Sæti – 200.000 kr. gjafabréf í golf verslun
- 2. Sæti – 100.000 kr. gjafabréf í golf verslun
- 3. Sæti – 50.000 kr. gjafabréf í golf verslun