Íslenskir atvinnu- og afrekskylfingar hafa verið að spila gott golf á alþjóðlegum vettvangi undanfarið.
Kylfingarnir okkar leika á mótaröðum um alla Evrópu og er gaman að fylgjast með gengi þeirra og ferðalögum. Í mótavaktinni eru mót vikunnar tekin saman, farið yfir úrslit og spáð fyrir gengi helgarinnar.
LET Access Mótaröðin
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Ragga Kristinsdóttir eru allar á meðal keppenda á PGA of Sweden Championship Landeryd mótinu á LET Access mótaröðinni. Mótaröðin er stigi fyrir neðan Evrópumótaröðina (LET) og getur gott gengi opnað alls kyns dyr í golfheiminum.
Leikið er á tveimur völlum, Landeryd Masters & Vesterby Links, í Svíþjóð.
Þetta er fyrsta mót Perlu á mótaröðinni, en hún fékk boð frá mótshaldara um þátttöku. Hún lék fyrsta hring sinn á Masters vellinum á pari vallarins, og situr jöfn í 6. sæti mótsins.
Andrea og Ragga eru ræstar út seinna í dag. Þær hafa báðar leikið í mörgum mótum á mótaröðinni í sumar, og gengið verið gott.
Andrea situr í 10. sæti stigalistans, en hún hefur verið í 4.- og 3. sæti í síðustu tveimur mótum. Efstu sjö kylfingarnir á listanum í lok tímabils fá fullan þátttökurétt á LET mótaröðinni, svo til mikils er að vinna.
Ragga er í 31. sæti listans, en hennar besti árangur á tímabilinu var 9. sætið á Super Bock Ladies Open mótinu í maí.
Hér má fylgjast með skori mótsins
LET Mótaröðin
Guðrún Brá Björgvinsdóttir mætir til leiks á Amundi German Masters mótinu, sem er hluti af LET mótaröðinni. Mótið fer fram á Green Eagle Golf Course golfvellinum í Þýskalandi dagana 26.–29. júní. Þetta er sjötta mót Guðrúnar á mótaröðinni í ár, og það fjórða í mánuðinum.
Hún lék best í Dutch Ladies Open mótinu í maí, þar sem hún endaði í 53. sæti.

Hér má fylgjast með skori mótsins
Nordic Golf League
Á Nordic Golf League mótaröðinni er Hlynur Begrsson mættur til leiks á PGA of Sweden Championship Landeryd mótinu í Svíþjóð. Mótið fer fram samhliða LET Access mótaröðinni og á sömu völlum. Fyrsta hring mótsins lék Hlynur á einu höggi undir pari og er jafn í 20. sæti.
Hér má fylgjast með skori mótsins
HotelPlanner Tour
Á HotelPlanner mótaröðinni er Nick Carlson, GM, skráður til leiks á Le Vaudreuil Golf Challenge mótinu í Le Vaudreuil, Frakklandi. Mótið fer fram dagana 26.-29. júní á Golf PGA France du Vaudreuilvellinum.
Nick er með fullan þátttökurétt á mótaröðina, og situr í 44. sæti stigalistans.