GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

GameBook - GSI
Auglýsing

Golf GameBook og Golfsamband Íslands kynna samstarf sem miðar að því að bæta stafræna upplifun kylfinga á Íslandi og styðja við þróun á barna- og unglingagolfi.

Samstilling forgjafar verður sjálfvirk

Eitt lykilatriða samstarfsins er sjálfvirk samstilling forgjafar milli Golf GameBook og GolfBox. Þessi samstilling gerir notendum Golf GameBook kleift að samstilla forgjöf sína við forgjafarkerfi GSÍ þannig að forgjöfin sé alltaf rétt og uppfærð í appinu. 

Ókeypis Gull-aðild fyrir unglinga

Til að efla barna- og unglingagolf mun Golf GameBook og GSÍ sameinast um að veita kylfingum 18 ára og yngri ókeypis aðgang að Golf GameBook með Gull aðild (verðmæti 60 evrur á ári). Með Gull-aðild fá kylfingar aðgang að ítarlegri tölfræði, GPS kortum, 20 mismunandi leiki auk fjölda annarra möguleika sem gera golfið skemmtilegra.

Samfélagið stækkar

Yfir 20% íslenskra kylfinga nota nú þegar Golf GameBook til að skrá og deila sínu skori. Með samstarfinu er verið að styrkja samfélag kylfinga með bættri stafrænni upplifun. Með því að bjóða börnum og unglingum upp á frítt aðgengi að eiginleikum í appinu er verið að styðja við framtíð íþróttarinnar.

„Þetta samstarf við Golfsamband Íslands er stór áfangi fyrir okkur í Golf GameBook. Við hlökkum til að bjóða íslenskum kylfingum upp á samtengdari og ánægjulegri upplifun á golfvellinum,“ segir Max Leijon, yfirmaður stefnumótunar og rekstrar hjá Golf GameBook.

„Við erum mjög ánægð með þetta samstarf. Markmiðið er að styðja við nútímalega stafræna upplifun fyrir meðlimi okkar og barna- og unglingagolf er í forgangi hjá okkur. Þetta framtak mun sannarlega hvetja fleiri unga og áhugasama til að stunda meira golf,“ segir Arnar Geirsson, þjónustustjóri hjá Golfsambandi Íslands.

Nánari upplýsingar veita:

Fv. Arnar Geirsson - Max Leijon

Um Golf GameBook

Markmið er að gera golfið skemmtilegra og auðveldara – bæði inn á vellinum og utan hans.

Golf GameBook er leiðandi app fyrir rafræna skorskráningu. Appið hentar kylfingum á öllum getustigum og styður yfir 20 mismunandi leiki sem gerir það að skemmtilegri og félagslegslegri leið til að halda utan um skorið. Þú getur tengst öðrum kylfingum, deilt lifandi skori, myndum, myndböndum og athugasemdum í gegnum þína vini.

Golf GameBook er í boði bæði sem ókeypis útgáfa og sem Gull aðild sem veitir aðgang að öllum eiginleikum appsins – þar á meðal ítarlegri tölfræði, GPS kortum og fjarlægðamæli, öllum leikjum og miklu meira.

Yfir 1,5 milljón kylfingar hafa nú þegar skráð sig og yfir 50 milljón golfhringir hafa verið skráðir í appið sem gerir Golf GameBook að einni af mest vaxandi golf samfélagi heims. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Espoo í Finnlandi og appið er mikið notað á öllum Norðulöndunum þar sem Svíþjóð er stærsti markaðurinn. Hraður vöxtur er í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar í Evrópu.

🔗 Frekari upplýsingar á www.golfgamebook.com
📱 Sæktu appið í App Store eða Google Play

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ