Golfdagurinn í Stykkishólmi fer fram sunnudaginn 22. júní í Golfklúbbnum Mostra.
Boðið verður upp á skemmtilega kynningu á grunnatriðum golfíþróttarinnar undir handleiðslu PGA golfkennara, ásamt leikjum og grillveislu fyrir þátttakendur. Golfdagurinn er fyrir alla fjölskylduna en hér er frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni!
22. júní
13:00-15:00
Golfklúbburinn Mostri

Golfdagurinn er samstarfsverkefni GSÍ, KPMG, PGA og GMS.